Fara í efni

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar eftir umsögn um rekstrarleyfi fyrir GeoSea, Vitaslóð 1

Málsnúmer 201804125

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 27. fundur - 17.04.2018

Óskað er umsagnar vegna umfangslítilla áfengisveitinga við sjóböðin að Vitaslóð 1. Forsvarsmaður veitingasölunnar verði Sigurjón Steinsson.
Jónas vék af fundi við umfjöllun þessa erindis.
Uppbygging sjóbaða og veitingaaðstöðu sem því fylgir er í samræmi við deiliskipulag og samþykkt byggingarleyfi. Á hinn bóginn er húsnæði ekki fullbúið og úttekið. Skipulags- og byggingarfulltrúa er veitt heimild til að veita jákvæða umsögn um erindið þegar öryggisúttekt hefur farið fram með fullnægjandi niðurstöðu.