Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd: Til umsagnar 172. mál tillaga til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023.

Málsnúmer 201810060

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 268. fundur - 17.10.2018

Fyrir byggðarráði liggur til umsagnar tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árið 2019 - 2023.
Byggðarráð lýsir yfir ánægju með að sjái fyrir endann á uppbyggingu Dettifossvegar í samgönguáætlun. Fyrir liggur að Dettifossvegur kemur til með að verða eitt af mikilvægustu skrefum í framþróun byggðar og atvinnulífs á norðausturhorni Íslands. Byggðarráð bendir á nauðsyn þess að halda áfram uppbyggingu á samgöngum í landshlutanum, sérstaklega með tilliti til flugsamgangna.