Fara í efni

Veitingahúsið Setberg ehf. sækir um leyfi fyrir breytingum á Pakkhúsi að Garðarsbraut 6

Málsnúmer 201811041

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 16. fundur - 27.11.2018

Óskað er eftir heimild til að setja dyr í stað glugga á suðurstafn Pakkhússins við Garðarsbraut 6. Teikningar eru unnar af Arnhildi Pálmadóttur arkitekt. Fyrir liggur umsögn Minjastofnunar Íslands með bréfi dags. 15. nóvember 2018.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkti erindið 16. nóvember s.l. að því tilskyldu að fylgt verði leiðbeiningum Minjastofnunar við framkvæmdina.
Skipulags- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við þessa afgreiðslu skipulags- og byggingarfulltrúa.