Fara í efni

Kynningar ýmissa húsnæðislausna tengt tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs

Málsnúmer 201901013

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 277. fundur - 10.01.2019

Í kjölfar þess að Norðurþing var valið eitt af tilraunasveitarfélögunum í húsnæðisverkefni velferðarráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs hafa fjölmargir byggingaverktakar sett sig í samband við sveitarfélagið og viljað kynna lausnir til uppbyggingar íbúðahúsnæðis. Til kynningar og umræðu í byggðarráði eru þau erindi sem borist hafa frá fyrirtækjum og aðilum sem sýnt hafa málinu áhuga.
Lagt fram til kynningar.