Fara í efni

Ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa hestamannafélaginu Grana.

Málsnúmer 201907051

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 296. fundur - 25.07.2019

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar eftir umsögn sveitarfélagins vegna umsóknar Hestamannafélagsins Grana um tækifærisleyfi í tilefni af dansleik á Mærudögum frá kl. 23:00 þann 26. júlí til kl. 03:00 þann 27. júlí n.k.
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn um tækifærisleyfið og hvetur leyfishafa til að fylgja eftir skyldu sinni að ekki sé selt áfengi eftir að leyfistími er útrunninn og aldurstakmarkanir séu virtar.