Fara í efni

Beiðni frá Rannsóknastöðinni Rifi um samstarf við Norðurþing - þjónusta rykmæla

Málsnúmer 202002068

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 59. fundur - 25.02.2020

Forstöðumaður Rannsóknarstöðvarinnar Rifs óskar eftir samstarfi við Norðurþing og Áhaldahúsið á Raufarhöfn fyrir hönd Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn. Málið varðar þjónustu við rykmæla sem fyrirhugað er að setja upp á Raufarhöfn í lok mars 2020.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að gera drög að samningi og leggja fyrir ráðið að nýju.