Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi fyrir veitingastað á lóð Veggjar í Kelduhverfi

Málsnúmer 202004113

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 67. fundur - 12.05.2020

Ásverjar ehf. óska byggingarleyfis fyrir þjónustuhúsnæði á lóðinni Veggur (lnr. 228.846). Fyrir fundi liggja teikningar unnar af Almari Eggertssyni hjá Faglausn. Um er að ræða timburhús á einni hæð, 382,4 m² að flatarmáli.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á fyrirhugaða byggingu og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögnum þar að lútandi hefur verið skilað inn.