Fara í efni

Birting upplýsinga frá Dvalarheimili aldraðra í Þingeyjarsýslum

Málsnúmer 202103014

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 355. fundur - 04.03.2021

Hjálmar Bogi Hafliðason og Hafrún Olgeirsdóttir leggja fram eftirfarandi tillögu;
Undirrituð leggja til að byggðarráð kalli eftir því að fundargerðir stjórnar DA - Dvalarheimilis aldraðra í Þingeyjarsýslum verði gerðar opinberar og birtar þannig að þær séu aðgengilegar íbúum.
Greinargerð
Fundargerðir stjórnar DA fyrir árið 2020 og 2021 hafa ekki birst íbúum né ársreikningur fyrir árið 2019.
Byggðarráð samþykkir tillöguna og felur sveitarstjóra að fylgja málinu eftir.