Fara í efni

Umsókn um lóð að Höfða 22

Málsnúmer 202202043

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 119. fundur - 22.02.2022

Örlygur Hnefill Örlygsson óskar eftir lóðinni að Höfða 22 á Húsavík. Á lóðinni er fyrir eldri steypustöð án lóðarréttinda. Tilgreind byggingaráform umsækjanda felast í að laga útlit fyrirliggjandi húss á lóðinni, útbúa bílastæði og þökuleggja lóðina.
Skipulags- og framkvæmdaráð frestar afgreiðslu erindisins og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða málið við umsækjanda.