Fara í efni

Ósk um umsögn við breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022

Málsnúmer 202211135

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 142. fundur - 20.12.2022

Þingeyjarsveit óskar umsagnar Norðurþings vegna áforma um breytingu á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022. Breytingin snýr að lagningu jarðstrengs frá Þeistareykjavirkjun að Kópaskerslínu 1 og liggur að sveitarfélagamörkum Norðurþings og Þingeyjarsveitar.
Skipulags- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við tillögu að breytingu aðalskipulags Þingeyjarsveitar.