Fara í efni

Krafa um skaðabætur vegna niðurrifs veggjar við Flókahús, Hafnarstétt 13

Málsnúmer 202307049

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 436. fundur - 13.07.2023

Fyrir byggðarráði liggur krafa um skaðabætur frá Gentle Giants- Hvalaferðum ehf. á hendur sveitarfélaginu Norðurþingi, vegna niðurrifs veggjar við Flókahús sem var framkvæmd haustið 2019. Fjárhæð kröfunnar er að upphæð 15.005.671 kr. og greiðsludagur eigi síðar en 1. ágúst nk.
Byggðarráð felur sveitarstjóra í samráði við lögfræðing sveitarfélagsins að svara MAGNA Lögmönnum ehf. í samræmi við umræður á fundinum og innan tilskilins frests sem er til 1. ágúst nk.