Fara í efni

Umsókn um rekstrarstyrk til kvennaathvarfsins á Norðurlandi

Málsnúmer 202312084

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 452. fundur - 04.01.2024

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Samtökum um kvennaathvarf þar sem óskað er eftir styrk frá sveitarfélögum á Norðurlandi eystra til að mæta húsnæðiskostnaði athvarfsins á Akureyri fyrir árið 2024, alls 2,8 milljónir króna.

Samkvæmt útreikningum er hlutur Norðurþings 277.056 kr.
Byggðarráð samþykkir að styrkja Samtök um kvennaathvarf um 277.056 kr. árið 2024 til að mæta húsnæðiskostnaði athvarfsins á Akureyri.