Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf.fyrir árið 2024
Málsnúmer 202503119
Vakta málsnúmerOrkuveita Húsavíkur ohf - 264. fundur - 08.04.2025
Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf. vegna rekstrarársins 2024 lagður fram til samþykktar og undirritunar.
Ég samþykki ársreikninginn sem sýnir líkt og áður mjög sterka stöðu OH sem er jákvætt. Vek þó athygli á því að líklegast er hagnaður af vatnsveitu-sviði félagsins (kalda vatnið) meiri en lög og reglur um vatnsveitur gera ráð fyrir.
Valdimar Halldórsson