Vatnsverndarsvæði í Norðurþingi
Málsnúmer 202504006
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 215. fundur - 08.04.2025
Fyrir liggur skýrsla Verkfræðistofunnar Vatnaskila um vatnsverndarsvæði í Norðurþingi, dags. mars 2025. Skýrslan var unnin að beiðni Norðurþings þar sem tilefni þótti til að endurskoða afmörkun helstu vatnsverndarsvæða í sveitarfélaginu. Skýrslan innifelur m.a. tillögur að endurskoðuðum mörkum vatnsverndarsvæða við Húsavík, í Reykjahverfi, Kelduhverfi og Öxarfirði.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra að afmarkanir þeirra vatnsverndarsvæða Norðurþings sem skýrslan nær til verði til samræmis við tillögur sem fram koma í skýrslu Verkfræðistofunnar Vatnaskila.