Söng- og leiklistarnámskeiðið Leik og Sprell
Málsnúmer 202504056
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 217. fundur - 13.05.2025
Bára Lind Þórarinsdóttir, hönnuður söng- og leiklistarnámskeiðsins Leikur og sprell, mun halda leiklistarnámskeið fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6-13 ára á Húsavík dagana 5. - 9. ágúst 2025 frá kl. 14:00 til kl. 17:00. Hún óskar eftir endurgjaldslausri notkun á litla sal íþróttahússins. Námskeiðsgjaldið er 28.000 kr.
Fjölskylduráð heimilar Báru Lind Þórarinsdóttur endurgjaldslaus afnot af litla sal íþróttahallarinnar.