Föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri
Málsnúmer 202602010
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 515. fundur - 12.02.2026
Fyrir byggðarráði liggur hvatning til umsagnar um þingályktunartillögu um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri.
Byggðarráð Norðurþings fagnar framkominni þingsályktunartilögu og telur nauðsynlegt að hún nái fram að ganga.
Byggðarráð tekur undir með Landhelgisgæslu Íslands um að þetta yrði stórt framfaraskref í viðbragðs-, öryggis,- og eftirlits- og björgunarmálum þjóðarinnar. Norðurland eystra er stórt og dreifbýlt svæði þar sem oft er um langan veg að fara fyrir næsta sjúkrabíl og/eða að næsta sjúkrahúsi eða flugvelli. Íbúar og gestir hafa þar af leiðandi hingað til ekki haft aðgang að bestu bráðaþjónustu vegna þessara staðbundnu aðstæðna.
Með staðsetningu þyrlu á Akureyri mætti stytta viðbragðstíma sérstaklega á jaðarsvæðum landshlutans, á fjölfarnari svæðum eða leiðum sem ferðamenn heimsækja gjarnan og á hafi úti fyrir Norðurlandi og tryggja þar með bætt aðgengi að enn betri bráðaþjónustu.