Byggðarráð Norðurþings
1.Rekstur Norðurþings 2026
Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer
2.Álagning gjalda 2026
Málsnúmer 202510101Vakta málsnúmer
Meðfylgjandi er skýring á álagningu fasteignagjalda bæði hvað varðar staðsetningu og stærð eigna.
3.Fjármögnun Lánasjóður sveitarfélaga
Málsnúmer 202602008Vakta málsnúmer
Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samþykkir bygggðarráð að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið m.a. til byggingar frístundarhúsnæðis við Borgarhólsskóla, hafnarframkvæmda og byggingar á sundlaug í Lundi í Öxarfirði. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Bergþóri Bjarnasyni, fjármálastjóra, kt.110870-5239, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Norðurþings, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
Byggðarráð vísar málinu til staðfestingar í sveitarstjórn.
4.Atvinnumál í Norðurþingi
Málsnúmer 202508067Vakta málsnúmer
Á fundinn kemur Björn Gíslason, verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar.
5.Kostnaðaráætlun nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík
Málsnúmer 202104106Vakta málsnúmer
Tilboðin voru samtals sex frá fjórum aðilum.
6.Viljayfirlýsing um ál endurvinnslu á Bakka
Málsnúmer 202601020Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja drög að viljayfirlýsingu við Transatlantic Aluminium ehf. vegna uppbyggingar ál-úrvinnslu á Bakka.
7.Kynning á stöðu verkefnis E- Valor ehf á Bakka
Málsnúmer 202503103Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði nú liggur umfjöllun um viljayfirlýsingu.
8.Uppsögn á samningi um póstþjónustu á Raufarhöfn
Málsnúmer 202509136Vakta málsnúmer
9.Viðauki vegna framkvæmda við húsnæði 2026
Málsnúmer 202602012Vakta málsnúmer
10.Viðauki vegna félagsstarfs aldraðra á Kópaskeri og Raufarhöfn
Málsnúmer 202602025Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð vísar viðaukabeiðni vegna lögbundins félagsstarfs aldraðra austan Tjörness til samþykktar í byggðarráði.
11.Slökkvilið Norðurþings
Málsnúmer 202505061Vakta málsnúmer
12.Fyrirtækjaþing 2025
Málsnúmer 202502073Vakta málsnúmer
13.Hverfisráð Norðurþings 2023 - 2025
Málsnúmer 202309134Vakta málsnúmer
Hverfisráð Öxarfjarðar:
Formaður: Ann-Charlotte Fernholm
Aðalmaður: Stefán Haukur Grímsson
Aðalmaður: Þorbjörg Dóra Gunnarsdóttir
Varamaður: Silja Rún Stefánsdóttir
Hverfisráð Kelduhverfis:
Formaður: Salbjörg Matthíasdóttir
Aðalmaður: Aðalsteinn Örn Snæþórsson
Aðalmaður: Guðmundur Baldvin Guðmundsson
Varamaður: Jóhannes Guðmundsson
Varamaður: Jónas Þór Viðarsson
Hverfisráð Raufarhafnar:
Formaður: Margrét Rögnvaldsdóttir
Aðalmaður: Einar Sigurðsson
Aðalmaður: Reynir Þorsteinsson
Varamaður: Bergdís Jóhannsdóttir
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.
14.Svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum
Málsnúmer 202602011Vakta málsnúmer
Gildistími svæðisskipulagsins er nú liðinn. Því þurfa aðildarsveitarfélög, Norðurþing og Þingeyjarsveit, að taka ákvörðun um framhaldið.
15.Stjórnunar- og verndaráætlun Mývatns og Laxár
Málsnúmer 202511071Vakta málsnúmer
16.Aðalfundur Norðurhjara ferðaþjónustusamtaka
Málsnúmer 202301049Vakta málsnúmer
Fundurinn verður haldinn fimmtudagskvöldið 5. mars næstkomandi á Hótel Norðurljósum á Raufarhöfn og hefst kl. 19:30.
17.Styrktarsjóður EBÍ, umsóknir 2026
Málsnúmer 202602018Vakta málsnúmer
Umsóknarfrestur í sjóðinn er til febrúarloka.
18.Umsóknir um stofnframlög
Málsnúmer 202309027Vakta málsnúmer
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2026.
19.Föst starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri
Málsnúmer 202602010Vakta málsnúmer
Byggðarráð Norðurþings fagnar framkominni þingsályktunartilögu og telur nauðsynlegt að hún nái fram að ganga.
Byggðarráð tekur undir með Landhelgisgæslu Íslands um að þetta yrði stórt framfaraskref í viðbragðs-, öryggis,- og eftirlits- og björgunarmálum þjóðarinnar. Norðurland eystra er stórt og dreifbýlt svæði þar sem oft er um langan veg að fara fyrir næsta sjúkrabíl og/eða að næsta sjúkrahúsi eða flugvelli. Íbúar og gestir hafa þar af leiðandi hingað til ekki haft aðgang að bestu bráðaþjónustu vegna þessara staðbundnu aðstæðna.
Með staðsetningu þyrlu á Akureyri mætti stytta viðbragðstíma sérstaklega á jaðarsvæðum landshlutans, á fjölfarnari svæðum eða leiðum sem ferðamenn heimsækja gjarnan og á hafi úti fyrir Norðurlandi og tryggja þar með bætt aðgengi að enn betri bráðaþjónustu.
20.Fundargerðir stjórnarfunda Græns iðngarðs á Bakka ehf.
Málsnúmer 202602039Vakta málsnúmer
21.Fundargerðir svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 2024
Málsnúmer 202403007Vakta málsnúmer
22.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer
23.Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum.
Málsnúmer 202308046Vakta málsnúmer
24.Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum m.a. um hollustuhætti og mengunarvarnir
Málsnúmer 202602017Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð mótmælir þeim áformum sem koma fram í framlögðu frumvarpi um að flytja allt eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga til Umhverfis- og orkustofnunar og að eftirlit með matvælum flytjist til Matvælastofnunar. Ráðið vísar erindinu til byggðarráðs.
Fundi slitið - kl. 10:45.