Fara í efni

Svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum

Málsnúmer 202602011

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 515. fundur - 12.02.2026

Svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum 2007-2025 var samvinnuverkefni fjögurra sveitarfélaga, Aðaldælahrepps, Þingeyjarsveitar, Skútustaðahrepps og Norðurþings sem skipulagsvöldin höfðu á tilgreindum háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum og iðnaðarsvæði á Bakka.

Gildistími svæðisskipulagsins er nú liðinn. Því þurfa aðildarsveitarfélög, Norðurþing og Þingeyjarsveit, að taka ákvörðun um framhaldið.
Byggðarráð óskar eftir samtali við sveitarstjórn Þingeyjarsveitar um framhald svæðisskipulagsins, enda hefur samvinna sveitarfélaga verið með miklum ágætum.

Byggðarráð Norðurþings - 517. fundur - 12.03.2026

Á 74. fundi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar sem haldinn var 26. febrúar var eftirfarandi bókað og samþykkt:

2602017 - Svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá byggðarráði Norðurþings varðandi svæðisskipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum þar sem óskað er eftir samtali við Þingeyjarsveit varðandi framhald svæðiskipulags sem sveitarfélögin höfðu með sér á tilgreindum háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum og iðnaðarsvæðinu á Bakka á árunum 2007-2025.

Sveitarstjórn þakkar erindið og felur sveitarstjóra að funda með byggðaráði Norðurþings.
Samþykkt samhljóða
Byggðarráð felur sveitastjóra að koma á fundi með fulltrúum Þingeyjarsveitar vegna málsins.