Atvinnumál í Norðurþingi
Málsnúmer 202508067
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 503. fundur - 04.09.2025
Fyrir byggðarráði liggur til kynningar frá sveitarstjóra staða atvinnumála í sveitarfélaginu.
Kári Marís Guðmundsson forstjóri PCC á Bakka kemur á fundinn undir þessum lið.

Sveitarstjórn Norðurþings - 156. fundur - 11.09.2025
Forseti sveitarstjórnar óskaði eftir að málið yrði tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar.
Til máls tóku: Hjálmar, Katrín, Helena, Bylgja og Soffía.
Lagt fram.
Lagt fram.
Sveitarstjórn Norðurþings - 157. fundur - 09.10.2025
Frá því snemma á þessu ári hefur legið fyrir að rekstur PCC BakkiSilicon væri erfiður vegna ástands á heimsmarkaði með kísilmálm. Það hefur leitt til rekstrarstöðvunar og uppsagna starfsfólks þar sem um 130 manns hafa misst vinnuna það sem af er þessu ári.
Rekstrarstöðvunin hefur víðtæk áhrif á starfsemi verktaka- og þjónustufyrirtækja en um 20 fyrirtæki í Norðurþingi hafa beinan hag af því að verksmiðjan sé í framleiðslu.
Norðurþing hefur greint áhrif rekstrarstöðvunarinnar á sveitarsjóð og er tekjusamdráttur útsvarstekna áætlaður um 3-400 milljónir króna sem jafngildir 12-14% samdrætti m.v. árið 2025. Áhrif á Hafnasjóð Norðurþings eru enn þyngri en áætlað er að sjóðurinn missi 60-70% tekna sinna vegna rekstrarstöðvunar PCC og stöðvun strandsiglinga í kjölfarið.
Sveitarstjórn hefur það sem af er ári átt marga upplýsingafundi og mjög gott samtal við þingmenn kjördæmisins, fastanefndir Alþingis og ráðherra í ríkisstjórn Íslands um stöðu mála. Á síðasta vorþingi sat forsvarsfólk sveitarfélagsins ásamt forstjóra PCC fundi með atvinnuveganefnd og efnahags-og viðskiptanefnd Alþingis til að upplýsa um stöðuna og fara yfir mögulegt viðbragð af hálfu stjórnvalda. Í haust hafa sömu aðilar fundað bæði með fjármála- og efnahagsráðherra og utanríkisráðherra til að fylgja málum eftir fyrir PCC. Einnig var fundað með þingmönnum kjördæmisins í kjördæmaviku í lok september.
Í júní áttu sveitarstjórar á SSNE svæðinu, ásamt framkvæmdastjóra samtakanna, fund með forsætisráðherra þar sem farið var yfir áhrif rekstrarvanda PCC á Norðurþing og atvinnumál á SSNE svæðinu. Í framhaldi af þeim fundi skipaði forsætisráðherra starfshóp fimm ráðuneyta með það hlutverk að kortleggja stöðu atvinnumála á Húsavík og nágrenni vegna tilkynninga um mögulega rekstrarstöðvun kísilvers PCC á Bakka. Starfshópnum var einnig ætlað að koma með tillögur að mögulegum viðbrögðum stjórnvalda til bæði skemmri og lengri tíma með hliðsjón af ólíkum sviðsmyndum. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili forsætisráðherra álitsgerð sinni núna um miðjan október en samvinna við hópinn hefur verið mjög góð, mikil upplýsingagjöf og kortlagning á stöðu mála.
Sveitarstjórn hefur allt þetta kjörtímabil lagt mikla áherslu á grænan iðngarð á Bakka. Sú vinna hefur skilað góðri kortlagningu á gæðum svæðisins sem hefur leitt af sér mikinn áhuga fyrirtækja á iðnaðarsvæðinu. Sveitarstjórn samþykkti viljayfirlýsingu við gagnaver á síðasta fundi sínum. Auk þess er unnið að viljayfirlýsingu um landeldi á Bakka og rannsóknum á svæðinu kringum Bakka fyrir vindorkuver, Carbfix, Heidelberg og Steypustöðina. Þá er til skoðunar álúrvinnsluverkefni, rafeldsneytisframleiðsla, stórþaravinnsla Íslandsþara og fleiri verkefni styttra á veg komin. Til að meta stöðuna og tryggja þá innviði sem þarf til þessara verkefna hefur t.d. verið fundað með Landsvirkjun, Landsneti, Farice, Vegagerðinni, SSNE og Eimi.
Rekstrarstöðvun PCC hefur mikil áhrif á rekstur Norðurþings, fyrirtækja og félaga á svæðinu, samfélagið í Norðurþingi og lífsviðurværi fjölskyldna. Sveitarstjórn hefur fullan skilning á alvarleika stöðunnar sem upp er komin en ítrekar að það eru mikil verðmæti fólgin í þeirri vinnu sem sveitarstjórn hefur lagt áherslu á síðustu mánuði og ár í tengslum við grænan iðngarð á Bakka. Sveitarstjórn mun áfram berjast fyrir tilveru verksmiðju PCC BakkiSilicon en einnig leggja kapp á að styrkja stoðir atvinnulífsins með því að fjölga fyrirtækjum og nýjum atvinnutækifærum í sveitarfélaginu. Sveitarstjórn vinnur úr erfiðri stöðu af ábyrgð, með samvinnu, jákvæða nálgun og bjartsýni fyrir framtíð samfélagsins að leiðarljósi.

Til máls tóku: Katrín, Helena, Benóný, Hjálmar og Aldey.
Lagt fram.
Lagt fram.
Byggðarráð Norðurþings - 515. fundur - 12.02.2026
Til umræðu staða atvinnumála í Norðurþingi. Einnig staða á samtölum við hagaðila og við verkefnin sem eru í viðræðum vegna uppbyggingar á Bakka.
Á fundinn kemur Björn Gíslason, verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar.

Byggðarráð þakkar Birni fyrir góða kynningu á stöðu mála og þeim tækifærum til uppbyggingar sem unnið er að um þessar mundir.
Sveitarstjórn Norðurþings - 163. fundur - 30.04.2026
Undirrituð óska eftir umræðu um atvinnumál í Norðurþingi.
Eiður Pétursson
Helena Eydís Ingólfsdóttir
Hjálmar Bogi Hafliðason
Kristinn Jóhann Lund
Soffía Gísladóttir
Eiður Pétursson
Helena Eydís Ingólfsdóttir
Hjálmar Bogi Hafliðason
Kristinn Jóhann Lund
Soffía Gísladóttir
Til máls tóku: Hjálmar, Helena, Jónas, Eiður, Áki, Benóný, Katrín, Ingibjörg, Soffía og Kristinn.
Meirihluti sveitarstjórnar leggur fram eftirfarandi bókun:
Norðurþing og Þingeyjasýslur búa yfir miklum tækifærum til atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar með nýtingu auðlinda, fjölgun starfa og tekjusköpun. Þegar á móti blæs reynir á styrk samfélagsins. Á slíkum tímum skiptir máli að festast ekki í vandanum heldur leita lausna og sjá tækifærin sem felast í breytingum. Með samstilltu átaki, sveigjanleika og skýrri sýn getum við snúið áskorunum í sóknarfæri og byggt enn sterkara atvinnulíf í Norðurþingi. Sérstök áhersla þarf að vera á uppbyggingu á Bakka, nýtingu orkuauðlinda, iðnað hverskonar, hafnsækna starfsemi og ferðaþjónustu. Jafnframt þarf að tryggja öfluga innviði, gott skipulag, húsnæði og þjónustu svo fólk og fyrirtæki sjái framtíð sína í Norðurþingi. Atvinnumál eru byggðamál. Með skýrri framtíðarsýn, ábyrgri stjórnsýslu og
markvissri hagsmunagæslu gagnvart ríki og stofnunum getur Norðurþing haldið áfram að byggja upp sterkt, fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf til framtíðar.
Áki, Benóný, Ingibjörg og Jónas taka undir bókun meirihluta sveitarstjórnar.
Lagt fram til kynningar.

Annað lagt fram til kynningar.