Byggðarráð Norðurþings
Dagskrá
1.Rekstur Norðurþings 2026
Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja útsvarstekjur í júní ásamt öðrum lykiltölum í rekstri sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
2.Atvinnumál í Norðurþingi
Málsnúmer 202508067Vakta málsnúmer
Á fund byggðarráðs kemur Björn Gíslason verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka og fer yfir stöðu mála.
Byggðarráð þakkar Birni Gíslasyni fyrir komuna á fundinn og góða yfirferð á stöðu verkefna sem tengjast uppbyggingu á Bakka.
3.Viðauki vegna framkvæmdar á Auðbrekku
Málsnúmer 202607018Vakta málsnúmer
Á 240. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað: Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og vísar honum til staðfestingar í byggðarráði í sumarleyfis umboði sveitarstjórnar.
Byggðarráð í sumarleyfis umboði sveitarstjórnar staðfestir fyrirliggjandi viðauka að upphæð 42,5 m.kr vegna gatnagerðar í Auðbrekku.
4.Úthlutun fjármagns til grunnskóla - Úthlutunarlíkan.
Málsnúmer 202512051Vakta málsnúmer
Á 242. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað: Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi mönnunarlíkan til útreikninga á mönnunarþörf grunnskóla. Ráðið vísar málinu til samþykktar í byggðarráði.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi mönnunarlíkan og fagnar því að lagt hafi verið í vinnu við gerð líkansins, líkanið mun nýtast vel sem greiningartæki fyrir skólastjórnendur.
5.Erindi vegna álagningar fasteignagjalda
Málsnúmer 202601001Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi vegna leiðréttingar á sorphirðugjöldum frá Kristjönu Sigurðardóttur.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að leiðrétta þann hluta gjaldsins sem innheimt var þann tíma sem húsnæðið var utan byggingarstigs eða samtals 154.157 kr.
Ráðið hafnar beiðni um lægra sorphirðugjald á grundvelli lítillar viðveru.
Ráðið hafnar beiðni um lægra sorphirðugjald á grundvelli lítillar viðveru.
6.Ráðning fjármálastjóra
Málsnúmer 202606077Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggja drög að auglýsingu í starf fjármálastjóra Norðurþings.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að auglýsingu um starfið og felur sveitarstjóra að auglýsa starfið.
7.Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við ESB
Málsnúmer 202606005Vakta málsnúmer
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við ESB fer fram 29. ágúst nk. og hefst atkvæða greiðsla utan kjörfundar þann 27. júlí nk.
Síðastliðin ár hefur kjósendum verið gert mögulegt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sérstökum kjörstjórum, skipuðum af sýslumanni á skrifstofum Norðurþings á Kópaskeri og Raufarhöfn. Til svo verði þarf sveitarstjórn að óska eftir því við sýslumann til samræmis 69. gr. kosningalaga nr. 113/2021.
Fyrir byggðarráði liggur því að óska eftir við sýslumann að skipa kjörstjóra á skrifstofum sveitarfélagsins á Kópaskeri og Raufarhöfn til þess að sinna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.

Byggðarráð samþykkir, í sumarleyfi sveitarstjórnar, að óska eftir við sýslumann að skipa kjörstjóra á skrifstofum sveitarfélagsins á Kópaskeri og Raufarhöfn. Tilnefningar ráðsins eru Einar Ingi Einarsson og Birna Björnsdóttir, starfsmenn sveitarfélagsins á staðnum.
Engin breyting er á kjörstöðum frá fyrri árum og verða þeir áfram fjórir með fimm kjördeildum:
Húsavík, Borgarhólsskóli - kjördeild 1 og 2.
Kelduhverfi, Skúlagarður - kjördeild 3.
Kópasker, skólahús - kjördeild 4.
Raufarhöfn, ráðhús - kjördeild 5.

8.Beiðni um fjárhagsstuðning við Skógræktarfélag Húsavíkur
Málsnúmer 202510084Vakta málsnúmer
Á fund byggðarráðs mætir Þröstur Eysteinsson frá Skógræktarfélagi Húsavíkur og fer yfir fyrirhuguð verkefni félagsins á næstu vikum.
Félagið óskar eftir afstöðu sveitarfélagsins til fyrirkomulags grisjunar í sumar.
Annars vegar með sögun eða með stærri grisjunarvél.
Félagið óskar eftir afstöðu sveitarfélagsins til fyrirkomulags grisjunar í sumar.
Annars vegar með sögun eða með stærri grisjunarvél.
Byggðarráð þakkar Þresti fyrir komuna á fundinn.
Kjartan og Aldey samþykkja að farin verði sú leið að sagað verði með sama hætti og undanfarin ár, vegna minna rasks og neikvæðra sjónrænna áhrifa.
Helena greiðir atkvæði gegn tillögunni og óskar bókað: Undirrituð telur skynsamlegra að nýta grisjunarvél til grisjunar þar sem því verður viðkomið.

9.Hverfisráð Raufarhafnar 2023-2026
Málsnúmer 202401123Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð Hverfisráðs Raufarhafnar frá 12. maí 2026 til kynningar.
Byggðarráð vísar lið nr. 1 í fundargerð Hverfisráðs til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Byggðarráð vísar liðum nr. 2 og 3 í fundargerð Hverfisráðs til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði og liður nr. 3, einnig til Orkuveitu Húsavíkur.
Byggðarráð vísar liðum nr. 2 og 3 í fundargerð Hverfisráðs til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði og liður nr. 3, einnig til Orkuveitu Húsavíkur.
10.Boð á haustþing SSNE 2026
Málsnúmer 202607027Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur boð á haustþing SSNE sem haldið verður þann 9. september nk. í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Lagt fram til kynningar.
11.Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2025
Málsnúmer 202606083Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur til kynningar ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
12.Aðalfundarboð Dvalarheimilis aldraðra
Málsnúmer 202606006Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur til kynningar aðalfundargerð DA sf.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:45.
Undir lið nr. 8, sat fundinn Þröstur Eysteinsson.