Úthlutun fjármagns til grunnskóla - Úthlutunarlíkan.
Málsnúmer 202512051
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 233. fundur - 13.01.2026
Úthlutunarlíkan vegna fjármagns til grunnskóla er lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fjölskylduráð - 242. fundur - 23.06.2026
Sviðstjóri velferðarsvið kynnir og leggur fram til samþykktar mönnunarlíkan til útreikninga á mönnunarþörf grunnskóla. Líkanið byggir á mönnunarlíkani Reykjanesbæjar og var samstarfsverkefni sveitarfélaganna Múlaþings, Skagafjarðar, Borgarbyggðar og Norðurþings.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi mönnunarlíkan til útreikninga á mönnunarþörf grunnskóla. Ráðið vísar málinu til samþykktar í byggðarráði.
Byggðarráð Norðurþings - 523. fundur - 09.07.2026
Á 242. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað: Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi mönnunarlíkan til útreikninga á mönnunarþörf grunnskóla. Ráðið vísar málinu til samþykktar í byggðarráði.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi mönnunarlíkan og fagnar því að lagt hafi verið í vinnu við gerð líkansins, líkanið mun nýtast vel sem greiningartæki fyrir skólastjórnendur.