Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Félag eldri borgara á Húsavík og nágrenni
Málsnúmer 202105039Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur til kynningar skýrsla stjórnar Félags eldri borgara á Húsavík og í nágrenni vegna starfsársins 2025-2026 og rekstrarreikningur vegna 2025. Einnig liggja til kynningar drög að uppfræðum samningi um leigu á húsnæði Félags eldri borgara á Húsavík og nágrennis (FEBH) og samstarf um félags- og tómstundastarf fyrir eldri borgara.
Fjölskylduráð þakkar fulltrúum Félags eldri borgara á Húsavík og nágrennis fyrir komuna á fundinn. Rekstrarreikningur og skýrsla stjórnar eru lögð fram til kynningar. Fyrir ráðinu liggur einnig uppfærður samningur um leigu á húsnæði Félags eldri borgara á Húsavík og nágrenni. Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi samning með áorðnum breytingum.
2.Tillaga um stuðning við uppbyggingu saunaklefa og infra rauðrar saunu við sundlaug Húsavíkur
Málsnúmer 202606053Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar tillögu Ágústs Sigurðar Óskarssonar fulltrúa M lista um að Norðurþing styðji verkefni hópsins vinir sundlaugarinnar á Húsavík við kaup og uppsetningu saunaklefa og infra rauðrar saunu við sundlaugina á Húsavík með fjárframlagi að fjárhæð allt að 3 milljónir króna.
Fjölskylduráð þakkar fulltrúum hópsins Vinir Sundlaugarinnar á Húsavík fyrir komuna á fundinn og vísar erindinu til skipulags og framkvæmdaráðs.
Ágúst bókar: Hann þakkar Vinum Sundlaugar Húsavíkur fyrir frábært framlag og vinnu fyrir sundlaugina og samfélagið í Norðurþingi. Tillaga Ágústs er að Norðurþing styðji verkefnið þannig að það komist í framkvæmd.
Ágúst bókar: Hann þakkar Vinum Sundlaugar Húsavíkur fyrir frábært framlag og vinnu fyrir sundlaugina og samfélagið í Norðurþingi. Tillaga Ágústs er að Norðurþing styðji verkefnið þannig að það komist í framkvæmd.
3.Grænuvellir - Skýrsla um innra mat 2025-2026.
Málsnúmer 202606044Vakta málsnúmer
Skýrsla Grænuvalla um innra mat 2025-2026 er lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.Öxarfjarðarskóli - Skýrsla um innra mat 2025-2026.
Málsnúmer 202606042Vakta málsnúmer
Skýrslur Öxarfjarðarskóla um innra mat 2025-2026 fyrir leik- og grunnskóladeildir eru lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
5.Úthlutun fjármagns til grunnskóla - Úthlutunarlíkan.
Málsnúmer 202512051Vakta málsnúmer
Sviðstjóri velferðarsvið kynnir og leggur fram til samþykktar mönnunarlíkan til útreikninga á mönnunarþörf grunnskóla. Líkanið byggir á mönnunarlíkani Reykjanesbæjar og var samstarfsverkefni sveitarfélaganna Múlaþings, Skagafjarðar, Borgarbyggðar og Norðurþings.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi mönnunarlíkan til útreikninga á mönnunarþörf grunnskóla. Ráðið vísar málinu til samþykktar í byggðarráði.
6.Borgarhólsskóli - Skýrsla um innra mat 2025-2026.
Málsnúmer 202606043Vakta málsnúmer
Skýrsla Borgarhólsskóla um innra mat 2025-2026 er lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
7.Notendaráð fatlaðs fólks í Norðurþingi 2022-2026
Málsnúmer 202208006Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur 9. fundargerð Notendaráðs fatlaðs fólks í Norðurþingi til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
8.Erindi vegna mærudaga
Málsnúmer 202606015Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá Friends of Moby Dick vegna skipulags Mærudaga 2026.
Fjölskylduráð felur Fjölmenningafulltrúa að eiga samtal við hlutaðeigendur.
9.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026
Málsnúmer 202606024Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð frá Tónlistarfélagi Húsavíkur. Félagið sækir um 100.000 kr. styrk vegna kaupa á tækjabúnaði.
Fjölskylduráð samþykkir að styrkja Tónlistafélag Húsavíkur að upphæð 100.000 kr.
10.Ungmennaþing SSNE 2026 - Niðurstöðuskýrsla
Málsnúmer 202605110Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur niðurstöðuskýrsla Ungmennaþings SSNE 2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fjölskylduráð vill jafnframt þakka ungmennaráði fyrir störf sín og hvetur þau til að halda áfram að láta raddir sínar heyrast og leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið.
Fjölskylduráð vill jafnframt þakka ungmennaráði fyrir störf sín og hvetur þau til að halda áfram að láta raddir sínar heyrast og leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið.
11.Ósk um styrk vegna endurnýjunar á líkamsræktartækjum á Raufarhöfn
Málsnúmer 202606051Vakta málsnúmer
Ungmennafélagið Austri óskar eftir styrk vegna kaupa á nýjum líkamsræktartækjum í Íþróttamiðstöðina á Raufarhöfn
Fjölskylduráð samþykkir að veita Ungmennafélaginu Austra 500.000 kr styrk til kaupa á tækjabúnaði.
12.Íþróttavika Evrópu 2026
Málsnúmer 202606052Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir bréf frá Íþrótta og ólympúsambandi Íslands vegna Íþróttaviku Evrópu sem er dagana 23-30.september nk. Fyrir liggur að taka þurfi afstöðu til þáttöku í verkefninu.
Fjölskylduráð samþykkir að taka þátt í Íþróttaviku Evrópu sem haldin verður 23-30. september næstkomandi. Ráðið felur verkefnastjóra velferðarsviðs að sækja um þáttöku til Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.
13.Kynning á velferðarsviði
Málsnúmer 202606055Vakta málsnúmer
Jón Höskuldsson sviðstjóri velferðarsviðs, Stefán Jón Sigurgeirsson verkefnastjóri á velferðarsviði, Tinna Ósk Óskarsdóttir félagsmálastjóri og Nele Marie Beitelstein fjölmenningarfulltrúi kynna starfsemi á velferðarsviði.
Fjölskylduráð þakkar Jóni, Tinnu, Stefáni og Nele fyrir greinargóðar kynningar á þeirra störfum.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:00.
Víðir Svansson og Harpa Steingrímsdóttir frá hópnum Vinum sundlaugarinnar, sátu fundinn undir lið 2.
Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir, leikskólastjóri Grænuvalla, Benedikt Þorri Sigurjónsson, fulltrúi foreldraráðs og Unnur Ösp Guðmundsdóttir , fulltrúi kennara, sátu fundinn undir lið 3.
Hrund Ásgeirsdóttir, skólastjóri Öxarfjarðarskóla, Hildur leikskólastjóri Lundakots í Öxarfjarðarskóla, Christoph Völl, starfsmaður Öxarfjarðarskóla, Silja Rún Stefánsdóttir, fulltúi foreldra sátu fundinn undir liðum 4 og 5.
Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, sat fundinn undir liðum 5 og 6.
Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálstjóri, sat fundinn undir liðum 1, 7 og 13.
Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir lið 8, 9,og 13.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 10 - 13.