Tillaga um stuðning við uppbyggingu saunaklefa og infra rauðrar saunu við sundlaug Húsavíkur
Málsnúmer 202606053
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 242. fundur - 23.06.2026
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar tillögu Ágústs Sigurðar Óskarssonar fulltrúa M lista um að Norðurþing styðji verkefni hópsins vinir sundlaugarinnar á Húsavík við kaup og uppsetningu saunaklefa og infra rauðrar saunu við sundlaugina á Húsavík með fjárframlagi að fjárhæð allt að 3 milljónir króna.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 240. fundur - 07.07.2026
Á 242. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað: Fjölskylduráð þakkar fulltrúum hópsins Vinir Sundlaugarinnar á Húsavík fyrir komuna á fundinn og vísar erindinu til skipulags og framkvæmdaráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Vinum sundlaugarinnar fyrir myndarlegt framlag til kaupa á saunaklefum sem hefur verið lengi á framkvæmdaáætlun. Ráðið samþykkir að framlag sveitarfélagsins til kaupa á búnaði verði 1.840.000 kr. og yrði fjárhæðinni ráðstafað af framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Ráðið felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að semja við Vini sundlaugarinnar um skil og loka frágang sem áætlaður er 1.700.000 kr.
Ágúst bókar: Hann þakkar Vinum Sundlaugar Húsavíkur fyrir frábært framlag og vinnu fyrir sundlaugina og samfélagið í Norðurþingi. Tillaga Ágústs er að Norðurþing styðji verkefnið þannig að það komist í framkvæmd.