Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdaráð

240. fundur 07. júlí 2026 kl. 13:00 - 15:50 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Þorsteinn Snævar Benediktsson formaður
  • Bylgja Steingrímsdóttir varaformaður
  • Einar E Sigurðsson varamaður
  • Guðmundur Halldór Halldórsson varamaður
  • Agnieszka Szczodrowska áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Elvar Árni Lund sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Gaukur Hjartarson skipul.- og byggingarfulltrúi
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
  • Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslu- og þjónustufulltrúi
Dagskrá
Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri, sat fundinn undir liðum 1-4.

1.Auðbrekka gatnagerð 2026

Málsnúmer 202606033Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggja gögn til kynningar frá Verkís varðandi gatnagerð í Auðbrekku vegna hjúkrunarheimilis.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi teikningar að gatnagerð í Auðbrekku.
Fylgiskjöl:

2.Viðauki vegna framkvæmdar á Auðbrekku

Málsnúmer 202607018Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdasráði liggur viðauki að upphæð 42,5 m.kr vegna endurnýjunar á götu við Auðbrekku til tengingar hjúkrunarheimilis.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og vísar honum til staðfestingar í byggðarráði í sumarleyfis umboði sveitarstjórnar.

3.Tillaga um stuðning við uppbyggingu saunaklefa og infra rauðrar saunu við sundlaug Húsavíkur

Málsnúmer 202606053Vakta málsnúmer

Á 242. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað: Fjölskylduráð þakkar fulltrúum hópsins Vinir Sundlaugarinnar á Húsavík fyrir komuna á fundinn og vísar erindinu til skipulags og framkvæmdaráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Vinum sundlaugarinnar fyrir myndarlegt framlag til kaupa á saunaklefum sem hefur verið lengi á framkvæmdaáætlun. Ráðið samþykkir að framlag sveitarfélagsins til kaupa á búnaði verði 1.840.000 kr. og yrði fjárhæðinni ráðstafað af framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026. Ráðið felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að semja við Vini sundlaugarinnar um skil og loka frágang sem áætlaður er 1.700.000 kr.

4.Umsókn um rannsóknarleyfi vegna fyrirhugaðrar móbergsvinnslu

Málsnúmer 202509134Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur umsókn um rannsóknarleyfi frá Solstice Materials ehf. Í fyrsta lagi er óskað heimildar til rannsókna á um 3 km3 svæði á iðnaðarsvæðinu austan vegar á Bakka og austurundir Skurðsbrúnanámu (svæði 1). Ætlunin er að bora þar 18 tilraunaholur, ýmist kjarnaborholur (45 mm) eða höggborholur (165 mm), sumarið 2026 til að kanna jarðlög og leggja mat á berg og gæði pozzólanefna á svæðinu. Verði niðurstöður jákvæðar er horft til þess að bora allt að 40 holur til viðbótar innan svæðisins. Í öðru lagi er óskað heimildar til samsvarandi rannsókna í námunda við Sæluhúsamúla á komandi sumrum (svæði 2). Í þriðja lagi fer félagið fram á að gerður verði samningur milli Norðurþings og Solstice Materials ehf þar sem fyrirtækið njóti samningsbundinnar verndar á rannsóknartíma og í hæfilegan tíma eftir að rannsóknum líkur.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst ekki á að afmörkun rannsóknarsvæðis (svæði 1) nái inn á deiliskipulagt iðnaðarsvæði við Bakka. Meirihluti ráðsins samþykkir hinsvegar að Solstice Materials ehf verði veitt leyfi til að gera allt að 18 rannsóknarholur á um 200 ha svæði austan iðnaðarsvæðis á Bakka skv. nánari afmörkun sem tilgreind verði í samningi milli aðila. Taka ber fram að tveir aðilar séu nú þegar með rannsóknarleyfi í landi sveitarfélagsins. Ráðið er ekki reiðubúið að fjalla um rannsóknarleyfi við Sæluhúsamúla meðan ekki liggur fyrir samþykki landeigenda á því svæði. Ráðið leggur til að unnin verði tillaga að samkomulagi milli Norðurþings og Solstice Materials ehf um samningsbundna vernd hagsmuna Solstice Materials og sveitarfélagsins vegna rannsóknanna.

Samningsdrög verða lögð fyrir ráð sveitarfélagsins þegar þau liggja fyrir.

Guðmundi hugnast ekki námuvinnsla á viðkomandi svæði og leggst því gegn því að fyrirtækinu sé veitt leyfi til rannsóknaborana.

5.Bílastæði fyrir ferðabíla - húsbíla og campera

Málsnúmer 202606120Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti tillögur varðandi bílastæði og þjónustu fyrir ferðabíla á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir tillögu sviðsstjóra þess efnis að setja á fót vinnuhóp/spretthóp til að vinna að og útfæra tillögur að staðsetningu bílastæða og þjónustu við ferðabíla árið um kring.

6.Grenndarstöð við Stangarbakka

Málsnúmer 202606125Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti fyrir ráðinu áform um að koma upp grenndarstöð á lóð sveitarfélagsins við Stangarbakka á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ræða við aðliggjandi lóðarhafa vegna staðsetningar grenndarstöðvar.

7.Regluverk um búfjárbeit - sjónarmið matvælaráðuneytis.

Málsnúmer 202606091Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur til kynningar minnisblað frá Matvælaráðuneytinu vegna regluverks um búfjárbeit.
Lagt fram til kynningar.

8.Fundargerðir HNE 2026

Málsnúmer 202603056Vakta málsnúmer

Á 522.fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Lagt fram til kynningar. Byggðarráð vísar fundargerð 249. fundar til kynningar í skipulags- framkvæmdaráði.
Lagt fram til kynningar.

9.Ósk um stöðuleyfi fyrir gám við Ketilsbraut 19

Málsnúmer 202606116Vakta málsnúmer

Valentin O. Melberg Loftsson óskar eftir stöðuleyfi til þriggja mánaða fyrir 20 feta gám á almennum bílastæðum suðaustan við hús sitt að Ketilsbraut 19. Meðfylgjandi erindi er rissmynd af fyrirhugaðri staðsetningu gámsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi fyrir gámnum til þriggja mánaða, þ.e. til 7. október 2026.

10.Ósk um umsögn vegna rekstrarleyfi gistingar í flokki IV frá Hildi Óladóttur vegna Mela gistiheimilis

Málsnúmer 202606088Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar Norðurþings vegna rekstrarleyfis til sölu gistingar í flokki IV vegna Mela Gistiheimilis á Kópaskeri. Umsækjandi er Hildur Óladóttir.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita jákvæða umsögn um erindið fyrir hönd Norðurþings.

11.Umsókn um byggingarheimild fyrir stækkun sumarhúss á Harðbak, Melrakkasléttu

Málsnúmer 202605048Vakta málsnúmer

Eigendur Ellubæjar við Harðbak á Melrakkasléttu óska samþykkis fyrir stækkun frístundahússins. Meðfylgjandi erindi eru teikningar unnar af Bjargeyju Björgvinsdóttur arkitekt og verkfræðingi. Brúttóstækkun er 45,4 m².
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarheimild fyrir viðbyggingunni þegar umsækjandi hefur skilað inn skriflegu samþykki nágranna í öðrum húsum að Harðbak.

12.Ósk um leyfi fyrir útlitsbreytingu að Héðinsbraut 4, Húsavík

Málsnúmer 202604100Vakta málsnúmer

Óskað er samþykkis fyrir útlitsbreytingum á norður- og vesturhlið eignarhluta Fjallasýnar Rúnars Óskarssonar ehf að Héðinsbraut 4 á Húsavík. Fyrir liggur skriflegt samþykki meðeigenda í húsinu. Erindið hefur áður verið tekið fyrir á fundi ráðsins. Nú hafa borist ítarlegri gögn með málsettum teikningum unnum af Baldri Kristjánssyni arkitekt.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita leyfi fyrir gluggum á norður- og vesturhlið Heðinsbrautar 4 til samræmis við framlagðar teikningar. Þorsteinn vék af fundi undir þessum lið.

13.Umsókn um byggingarheimild fyrir þurrsalernum við Hljóðakletta

Málsnúmer 202606063Vakta málsnúmer

Stefán Örn Stefánsson, f.h. Náttúruverndarstofnunar, óskar byggingarheimildar fyrir þurrsalerni við Hljóðakletta. Fyrir fundi liggja teikningar unnar af Stefáni Erni Stefánssyni arkitekt hjá ARGOS. Húsið er 17,5 m² að grunnfleti og 44,7 m3 að rúmmáli.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirhugaða uppbyggingu og felur byggingarfulltrúa að gefa byggingarheimild fyrir húsinu.

Fundi slitið - kl. 15:50.