Umsókn um byggingarheimild fyrir stækkun sumarhúss á Harðbak, Melrakkasléttu
Málsnúmer 202605048
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 240. fundur - 07.07.2026
Eigendur Ellubæjar við Harðbak á Melrakkasléttu óska samþykkis fyrir stækkun frístundahússins. Meðfylgjandi erindi eru teikningar unnar af Bjargeyju Björgvinsdóttur arkitekt og verkfræðingi. Brúttóstækkun er 45,4 m².
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar byggingarfulltrúa að veita byggingarheimild fyrir viðbyggingunni þegar umsækjandi hefur skilað inn skriflegu samþykki nágranna í öðrum húsum að Harðbak.