Fara í efni

Ósk um leyfi fyrir útlitsbreytingu að Héðinsbraut 4, Húsavík

Málsnúmer 202604100

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 238. fundur - 05.05.2026

Rúnar Óskarsson, f.h. Fjallasýnar Rúnars Óskarsonar ehf, óskar eftir samþykki fyrir uppsetningu glugga á vestur- og norðurhlið eignarhluta fyrirtækisins í Héðinsbraut 4. Fyrir liggur rissmynd af fyrirhugaðri breytingu og undirritað samþykki eigenda annara eignarhluta í húsinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð frestar afgreiðslu máls þar til frekari gögn um fyrirhugaða notkun hússins liggja fyrir.
Þorsteinn vék af fundi undir þessum lið.

Skipulags- og framkvæmdaráð - 239. fundur - 23.06.2026

Rúnar Óskarsson, f.h. Fjallasýnar Rúnars Óskarsonar ehf, óskar eftir samþykki fyrir uppsetningu glugga á vestur- og norðurhlið eignarhluta fyrirtækisins í Héðinsbraut 4. Fyrir liggur rissmynd af fyrirhugaðri breytingu, undirritað samþykki eigenda annara eignarhluta í húsinu og útskýringar vegna fyrirhugaðra breytinga. Erindið var áður til umfjöllunar á fundi ráðsins 5. maí s.l. en afgreiðslu þá frestað og óskað eftir frekari gögnum um fyrirhugaða notkun hússins. Frekari upplýsingar vegna erindisins voru send á byggingarfulltrúa 20. júní.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur gögn málsins ennþá ófullnægjandi og frestar málinu þar til úr hefur verið bætt.
Þorsteinn vék af fundi undir þessum lið.