Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
1.Ungmennaráð 2025-2026
Málsnúmer 202602020Vakta málsnúmer
Á 240. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð þakkar ungmennaráði fyrir góða fundargerð.
Fjölskylduráð beinir því til sviðstjóra að bókun í lið nr. 6 í fundargerð ungmennaráðs verði höfð til hliðsjónar við skipulagningu á notkun og starfsemi í nýju frístundarhúsi.
Fjölskylduráð vísar því sem við á í lið nr. 7 til skipulags og framkvæmdaráðs.
Sviðstjóra er falið að kynna fyrir skólastjórnendum fundargerð ungmennaráðs.

Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar ungmennaráði fyrir góða fundargerð og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að taka málið áfram.
2.Lokun Regnbogabrautar 2026
Málsnúmer 202604087Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs óskar eftir heimild frá skipulags- og framkvæmdaráði til að loka Regnbogabraut á góðviðrisdögum í sumar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir lokun hluta Garðarsbrautar frá Garðarshólma að Samkomuhúsi frá 17. júlí til 4. ágúst 2026.
3.Tjaldsvæði á Kópaskeri - 2026 Leigusamningur um afnot
Málsnúmer 202604101Vakta málsnúmer
Fyrir ráðinu liggur til samþykktar leigusamningur um afnot af tjaldsvæði Norðurþings á Kópaskeri við Skerjakollu ehf.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi leigusamning.
4.Tjaldsvæði á Raufarhöfn - 2026 Leigusamningur um afnot
Málsnúmer 202604102Vakta málsnúmer
Fyrir ráðinu liggur til samþykktar leigusamningur um afnot af tjaldsvæði Norðurþings á Raufarhöfn við A.G Verk ehf.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi leigusamning.
5.Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám Endurvinnslunnar
Málsnúmer 202604088Vakta málsnúmer
Bjarni Þór Geirsson sækir um stöðuleyfi á Röndinni á Kópaskeri fyrir gám undir móttöku á flöskum og dósum fyrir Endurvinnnsluna.
Skipulags- og framkvæmdaráð veitir framhald á stöðuleyfi til eins árs en bendir umsækjanda á að lagfæra útlit gámsins og gera snyrtilegan eigi síðar en fyrir lok ágúst 2026.
6.Reglur fyrir stöðuleyfi gáma
Málsnúmer 202604117Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti fyrir ráðinu tillögur að reglum varðandi gáma sem veitt eru stöðuleyfi fyrir.
Einnig voru kynntar tillögur að reglum varðandi umgengni, útlit og ástand gáma sem fá stöðuleyfi á geymslusvæðum Norðurþings.

Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur að reglum og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.
7.Ósk um stöðuleyfi fyrir gám við á lóð Sveinunga hf. á Raufarhöfn
Málsnúmer 202604074Vakta málsnúmer
Hrólfur Björnsson, f.h. Sveinunga hf, óskar stöðuleyfis fyrir 40 feta frystigámi innan lóðar sunnan við Flokkunarstöðina við Hafskipabryggju á Raufarhöfn. Fyrir liggur rissmynd af staðsetningu.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi fyrir gámnum til loka maí 2027.
8.Félagar í Miðjunni hæfingu óska eftir aðstöðu í Kvíabekk til að starfsrækja kaffihús sumarið 2026
Málsnúmer 202604112Vakta málsnúmer
Miðjan - hæfing óskar eftir aðstöðu í Kvíabekk til að starfrækja kaffihús í sumar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita Miðjunni- hæfingu afnot af húsnæðinu sumarið 2026.
9.Ósk um stöðuleyfi fyrir gám við Kjarnafæði Norðlenska, Húsavík
Málsnúmer 202604085Vakta málsnúmer
Karen Mist Kristjánsdóttir, f.h. Eims, óskar eftir stöðuleyfi fyrir gám norðan við lóð Kjarnafæði Norðlenska.Í gámnum verður búnaður sem mun vinna verðmæti úr ferlavatni frá sláturhúsi Kjarnafæðis Norðlenska. Meðfylgjandi erindi er rissmynd af afstöðu fyrirhugaðs gáms auk ljósmynda af honum.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi fyrir gámnum til loka október 2026.
10.Beiðni um umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Fógeta ehf vegna Krossdals 2
Málsnúmer 202604099Vakta málsnúmer
Sýslumaðurinn á Húsavík óskar umsagnar Norðurþings um rekstrarleyfi til sölu gistingar í flokki II frá Fógeta ehf vegna Krossdals 2.
Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að veita jákvæða umsögn Norðurþings þegar fyrir liggja fullnægjandi úttektir vegna yfirstandandi framkvæmda á eigninni.
11.Ósk um leyfi fyrir útlitsbreytingu að Héðinsbraut 4, Húsavík
Málsnúmer 202604100Vakta málsnúmer
Rúnar Óskarsson, f.h. Fjallasýnar Rúnars Óskarsonar ehf, óskar eftir samþykki fyrir uppsetningu glugga á vestur- og norðurhlið eignarhluta fyrirtækisins í Héðinsbraut 4. Fyrir liggur rissmynd af fyrirhugaðri breytingu og undirritað samþykki eigenda annara eignarhluta í húsinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð frestar afgreiðslu máls þar til frekari gögn um fyrirhugaða notkun hússins liggja fyrir.
Þorsteinn vék af fundi undir þessum lið.

12.Ósk um leyfi til að setja upp líkön af fuglum á Raufarhöfn
Málsnúmer 202604106Vakta málsnúmer
Pedro Rodrigues fyrir hönd Rannsóknarstöðvarinnar Rifs óskar leyfis til að setja upp 12 fuglalíkön úr timbri á mismunandi stöðum á Raufarhöfn. Fuglalíkönin eru búin til af grunnskólanemendum á Raufarhöfn úr rekavið af Melrakkasléttu. Hvert líkan er 15-20 cm hátt og ætlunin að stilla þeim upp á um 50 cm hárri járnstöng. Meðfylgjandi erindi fylgir kort af fyrirhugaðri staðsetningu hvers fugls og ljósmyndir af líkönunum.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir uppsetningu fuglalíkananna. Nánari staðsetning verði ákvörðuð í samráði við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.
13.Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Bakka - 3. áfangi
Málsnúmer 202601015Vakta málsnúmer
Nú er lokið kynningarferli skipulagslýsingar vegna deiliskipulags 3. áfanga iðnaðarsvæðis á Bakka. Alls bárust 8 umsagnir.
1. Minjastofnun telur tilefni til að vinna nýja skráningu fornminja á skipulagssvæðinu.
Viðbrögð: Skipulagsfulltrúa verði falið að láta vinna nýja fornleifaskráningu á skipulagssvæðinu.
2. Rarik gerir ekki athugasemdir við skipulagslýsinguna en óskar eftir samráði vegna hönnunar dreifikerfis á skipulagssvæðinu.
Viðbrögð: Haft verður samráð við Rarik vegna áframhalds skipulagsvinnunar.
3.1. Náttúruverndarstofnun telur að afmörkun deiliskipulags nái inn á svæði á náttúruminjaskrá og telur æskilegt að lagt verði mat á hvort unnt sé að breyta mörkum skipulagssvæðisins þannig að þau gangi ekki innfyrir mörk náttúruverndarsvæðisins.
Viðbrögð: Eins og fram kemur í bréfi Náttúruverndarstofnunar nær minjasvæðið til sérkennilega rofinna sjávarkletta og nafa (bergganga) fram undan höfðanum auk lífríkra fjara og skerja. Vesturmörk skipulagssvæðisins liggja um tún Bakka og eru í samræmi við afmörkun iðnaðarsvæða sem í gildi hafa verið um áratuga skeið. Framkvæmdir innan skipulagssvæðis munu ekki raska tilgreindum náttúruminjum.
3.2. Náttúruverndarstofnun leggur áherslu á að vistgerðum með mjög hátt eða hátt verndargildi verði ekki raskað vegna framkvæmda á skipulagssvæðinu.
Viðbrögð: Farið verður yfir vistgerðarflokkun við nánari vinnslu deiliskipulagstillögu og horft til mögulegrar verndar fágætari vistgerða.
3.3. Náttúruverndarstofnun telur mikilvægt er að meta áhrif hljóðvistar á fuglalíf við skipulag og framkvæmdir eftir því sem við á, grípa til mótvægisaðgerða svosem með staðarvali, takmörkun á framkvæmdum á varptíma og vöktun á áhrifum.
Viðbrögð: Horft verði til mótvægisaðgerða gegn röskun fuglalífs við deiliskipulag svæðisins.
4. HMS minnir á að horfa þarf til samræmis við deiliskipulags við bæði gildandi aðalskipulag og einnig nýtt aðalskipulag sem nú er á lokastigum. Skila þarf deiliskipulagsgögnum á stafrænu formi auk hefðbundinna skipulagsgagna. Minnt er á samráð við hagsmunaaðila við skipulagsgerðina.
Viðbrögð: Leiðbeiningum Skipulagsstofnunar verður fylgt.
5.1. Landsnet óskar samráðs við fyrirtækið um útfærslu deiliskipulagsins þannig að rými verði skapað fyrir fyrirhugaða uppbyggingu Landsnets á svæðinu. Í nýsamþykktri kerfisáætlun Landsnets er gert ráð fyrir nýju 220 kV tengivirki á Bakka.
Viðbrögð: Norðurþing mun hafa samráð við Landsnet vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar nýs tengivirkis.
5.2. Landsnet leggur áherslu á að helgunarsvæði Þeistareykjalínu 1 verði afmarkað á deiliskipulagsuppdrætti.
Viðbrögð: Helgunarsvæði Þeistareykjalínu 1 verður fært inn á uppdrátt í samráði við Landsnet.
6.1. Náttúrufræðistofnun bendir á sömu atriði og Náttúruverndarstofnun sbr. töluliði 3.1, 3.2 og 3.3 hér að ofan.
Viðbrögð: Sbr. 3.1, 3.2 og 3.3.
7. Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra gerir ekki athugasemdir við skipulagslýsinguna.
Viðbrögð: Umsögnin gefur ekki tilefni til viðbragða á þessu stigi.
8.1. Vegagerðin mælir með virku samráði við Vegagerðina á vinnslustigi skipulagstillögunnar.
Viðbrögð: Norðurþing mun hafa samráð við Vegagerðina við vinnslu skipulagstillögunnar.
8.2. Vegagerðin bendir á að ef til þess kemur að vegur verði tekinn inn á vegaskrá þá verði hann að uppfylla kröfur veghönnunarreglna hvað varðar uppbyggingu, útfærslu, fjarlægð á milli vegamóta o.s.frv. Æskilegt er því að málsetja fjarlægðir á milli tenginga.
Viðbrögð: Verður skoðað við skipulagsvinnuna.
8.3. Vegagerðin fer fram á að fram komi á skipulagsuppdrætti að öðrum verði heimilt að nýta tengingu að þjóðvegi komi til frekari uppbyggingar á svæðinu.

8.4. Vegagerðin óskar eftir að veghelgunarsvæði verði sýnd á skipulagsuppdrætti og minnir á að framkvæmdir og mannvirki innan veghelgunarsvæðis eru háðar leyfi frá Vegagerðinni.
Viðbrögð: Veghelgunarsvæði verða teiknuð inn á deiliskipulagsuppdrátt.
8.5. Vegagerðin mælir ekki með krossvegamótum og leggur til að horft verði til hliðfærða T-vegamóta.
Viðbrögð: Hönnun gatnamóta verður skoðuð í samráði við Vegagerðina.
Skipulagsfulltrúa er falið að halda áfram með skipulagsvinnuna.

14.Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagni á lóð Héðinsbrautar 6, Húsavík
Málsnúmer 202604118Vakta málsnúmer
Hafla Iceland ehf óskar eftir stöðuleyfi fyrir matarvagni á lóð Héðinsbrautar 6. Umsækjandi segist hafa náð samkomulagi þar að lútandi við lóðarhafa. Meðfylgjandi erindi er afstöðumynd. Fyrir liggur jákvæð umsögn frá næsta nágranna að Héðinsbraut 4.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi fyrir matarvagninum til loka maí 2027.
15.Varmadæluvæðing, Jöfnum leikinn á Raufarhöfn
Málsnúmer 202605004Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur minnisblað um varmadæluvæðingu eigna Norðurþings á Raufarhöfn.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að sækja um styrki til Umhverfis- og orkustofnunar.
Fundi slitið - kl. 15:30.