Fara í efni

Ósk um leyfi til að setja upp líkön af fuglum á Raufarhöfn

Málsnúmer 202604106

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 238. fundur - 05.05.2026

Pedro Rodrigues fyrir hönd Rannsóknarstöðvarinnar Rifs óskar leyfis til að setja upp 12 fuglalíkön úr timbri á mismunandi stöðum á Raufarhöfn. Fuglalíkönin eru búin til af grunnskólanemendum á Raufarhöfn úr rekavið af Melrakkasléttu. Hvert líkan er 15-20 cm hátt og ætlunin að stilla þeim upp á um 50 cm hárri járnstöng. Meðfylgjandi erindi fylgir kort af fyrirhugaðri staðsetningu hvers fugls og ljósmyndir af líkönunum.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir uppsetningu fuglalíkananna. Nánari staðsetning verði ákvörðuð í samráði við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.