Ósk um stöðuleyfi fyrir gám við á lóð Sveinunga hf. á Raufarhöfn
Málsnúmer 202604074
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 238. fundur - 05.05.2026
Hrólfur Björnsson, f.h. Sveinunga hf, óskar stöðuleyfis fyrir 40 feta frystigámi innan lóðar sunnan við Flokkunarstöðina við Hafskipabryggju á Raufarhöfn. Fyrir liggur rissmynd af staðsetningu.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi fyrir gámnum til loka maí 2027.