Umsókn um stöðuleyfi fyrir matarvagni á lóð Héðinsbrautar 6, Húsavík
Málsnúmer 202604118
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 238. fundur - 05.05.2026
Hafla Iceland ehf óskar eftir stöðuleyfi fyrir matarvagni á lóð Héðinsbrautar 6. Umsækjandi segist hafa náð samkomulagi þar að lútandi við lóðarhafa. Meðfylgjandi erindi er afstöðumynd. Fyrir liggur jákvæð umsögn frá næsta nágranna að Héðinsbraut 4.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi fyrir matarvagninum til loka maí 2027.