Umsókn um stöðuleyfi fyrir gám Endurvinnslunnar
Málsnúmer 202604088
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 238. fundur - 05.05.2026
Bjarni Þór Geirsson sækir um stöðuleyfi á Röndinni á Kópaskeri fyrir gám undir móttöku á flöskum og dósum fyrir Endurvinnnsluna.
Skipulags- og framkvæmdaráð veitir framhald á stöðuleyfi til eins árs en bendir umsækjanda á að lagfæra útlit gámsins og gera snyrtilegan eigi síðar en fyrir lok ágúst 2026.