Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
1.Skipulags- og byggingarmál - kynning
Málsnúmer 202606059Vakta málsnúmer
Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti sitt starf og helstu verkefni ráðsins vegna skipulagsmála.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna.
2.Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Bakka - 3. áfangi
Málsnúmer 202601015Vakta málsnúmer
Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur til að fyrirhuguðu deiliskipulagi 3. áfanga iðnaðarsvæðis á Bakka verði skipt upp þannig að næsti áfangi feli í sér deiliskipulagninu lóðar undir gagnaver austan þjóðvegar norðan spennivirkis Landsnets en deiliskipulagningu lóða vestan þjóðvegar verði frestað um sinn. Markmið þessa 3. áfanga deiliskipulags á Bakka er að útbúa lóð undir mögulegt gagnaver.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á að vinna fyrst deiliskipulag austan þjóðvegar og norðan spennivirkis Landsnets áður en haldið er áfram með deiliskipulagningu vestan þjóðvegar. Skipulagsfulltrúa er falið að láta vinna frumtillögu að deiliskipulaginu.
3.Ósk um gerð nýs lóðarleigusamnings fyrir Héðinsbraut 7
Málsnúmer 202606057Vakta málsnúmer
Ingibjörg Gísladóttir óskar eftir að gefinn verði út lóðarleigusamningur fyrir Héðinsbraut 7 á grundvelli fyrirliggjandi deiliskipulags sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. maí 2017.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við byggðaráð, í sumarleyfisumboði sveitarstjórnar, að gerður verði lóðarsamningur fyrir Héðinsbraut 7 á grundvelli fyrirliggjandi deiliskipulags.
4.GG2023 ehf. óskar tímabundinna afnota á lóðinni Hrísmóar 5 til uppsetningar á gámatjaldi vegna tilraunaverkefnis
Málsnúmer 202606050Vakta málsnúmer
GG2023 ehf óskar tímabundinna afnota af lóðinni að Hrísmóum 5 vegna tilraunaverkefnis við framleiðslu hágæða grasköggla. Fyrir hefur GG2023 afnot af lóðinni að Hrísmóum 3 til þurrkunar á korni. Fyrirhugað er að reisa "gámatjald" á lóðinni sem hýsa mun blásara og kögglunarbúnað.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við byggðaráð að GG2023 verði boðin tímabundin afnot af lóðinni að Hrísmóum 5 til loka september 2031. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði falið að gera drög að samningi um lóðarafnotin og kynna fyrir ráðinu við fyrsta tækifæri.
Umsækjandi þarf að leggja fram skýrari gögn vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar, m.a. afstöðu hennar til lóðarmarka og byggingarreits.
Umsækjandi þarf að leggja fram skýrari gögn vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar, m.a. afstöðu hennar til lóðarmarka og byggingarreits.
5.Ósk um leyfi fyrir breytingu á þaki og klæðningu á bílskúr við Brávelli 3, Húsavík
Málsnúmer 202606037Vakta málsnúmer
Ólafur Ármann Sigurðsson óskar leyfis til að setja risþak á bílskúr sinn við Brávelli 3 á Húsavík. Fyrir liggur teikning unnin af Erni Sigurðssyni tæknifræðingi. Ennfremur liggur fyrir undirritað samþykki nágranna fyrir útlitsbreytingunni. Fyrir liggur umsögn frá slökkviliði Norðurþings sem ekki leggst gegn því að leyfi fyrir framkvæmdinni verði veitt, enda verði fyrirliggjandi eldvörn bílskúrsins ekki skert við framkvæmdirnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur grenndarkynningu fullnægjandi og heimilar byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir framkvæmdinni þegar fullnægjandi gögn þar að lútandi hafa borist.
6.Ósk um leyfi fyrir úrtöku 5.000 rúmmetra af mölburðarefni úr landi Presthóla
Málsnúmer 202606038Vakta málsnúmer
Óskað er heimildar til að taka 5.000 m3 af mölburðarefni úr opinni námu í landi Presthóla. Um er að ræða opna námu við þjóðveg um einn kílómetra suðvestur af Presthólum.
Skipulags- og framkvæmdaráð heimilar efnistöku upp á 5.000 m3 úr námunni vegna sérstöðu hennar og brýnnar þarfar.
Ómar vék af fundi undir þessum lið.
Ómar vék af fundi undir þessum lið.
7.Ósk um umsögn um gistileyfi í flokki II frá Ásverjum ehf. vegna Veggs gistihús
Málsnúmer 202606065Vakta málsnúmer
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar Norðurþings um rekstrarleyfi til sölu gistingar í viðbyggingu við Vegg í Kelduhverfi.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita sýslumanni jákvæða umsögn þegar fullnægjandi öryggisúttekt húsnæðisins hefur farið fram.
8.Ósk um umsögn um breytingu á gildu rekstrarleyfi frá Donda ehf. vegna Húsavíkur Öl
Málsnúmer 202606018Vakta málsnúmer
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar Norðurþings um breytingu á rekstrarleyfi til handa Donda ehf vegna Húsavík Öl. Breyting felst í nýjum 84 m² veitingasal sunnan við fyrri aðstöðu auk fyrirhugaðrar stækkunar á útisvæði. Hámarksgestafjöldi í breyttri aðstöðu væri 100 manns.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita sýslumanni jákvæða umsögn þegar fullnægjandi öryggisúttekt húsnæðisins hefur farið fram.
Þorsteinn vék af fundi undir þessum lið.
Þorsteinn vék af fundi undir þessum lið.
9.Ósk um umsögn fyrir rekstarleyfi veitinga í flokki II frá Öskjureit ehf. fyrir Gilið bakarí
Málsnúmer 202606011Vakta málsnúmer
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar Norðurþings um rekstrarleyfi til sölu veitinga í flokki II fyrir Öskjureit ehf vegna Gilsins bakarís að Garðarsbraut 18A.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita sýslumanni jákvæða umsögn þegar fullnægjandi öryggisúttekt húsnæðisins hefur farið fram.
10.Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun og viðbótum á vatnslindum við Fiskeldið Haukamýri, Húsavík
Málsnúmer 202605125Vakta málsnúmer
Fiskeldið Haukamýri óskar leyfis til framkvæmda fyrir aukna vatnstöku á núverandi vatnstökusvæðum fyrirtækisins, annarsvegar í Gvendarsteinsmýri og hinsvegar Haukamýrardal. Markmið með vatnstöku er að ná allt að 450 l/sek af köldu vatni til samræmis við fyrirliggjandi vatnssamninga. Horft er til þess að vinna verkið með minni tækjum til að lágmarka jarðrask. Framkvæmdir verði utan varptíma fugla.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirhugaða framkvæmd. Ráðið leggur áherslu á að verkið verði unnið með sem minnstu jarðraski og utan varptíma fugla.
11.Umsókn um lóðina Höfði 8A á Húsavík
Málsnúmer 202605096Vakta málsnúmer
Birkir Søebeck Viðarsson, f.h. Birkir Viðarsson ehf, óskar eftir úthlutun byggingarlóðarinnar Höfði 8A á Húsavík. Birkir hyggst reisa þar iðnaðarhús með 4-6 iðnaðarbilum. Lóðin er hluti lóðar Höfða 8 skv. gildandi deiliskipulagi. Skipulagsfulltrúi kynnti tillögu að afmörkun lóðarinnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við byggðaráð, í sumarleyfisumboði sveitarstjórnar, að Birki Viðarssyni ehf verði úthlutað lóðinni að Höfða 8A til samræmis við fyrirliggjandi tillögu að afmörkun.
12.Handverksfélagið Heimöx óskar endurnýjunar stöðuleyfis við Gljúfrastofu við Ásbyrgi
Málsnúmer 202605092Vakta málsnúmer
Handverksfélagið Heimöx óskar endurnýjunar stöðuleyfis fyrir hús sitt við Gljúfrastofu í Ásbyrgi. Fyrir liggur yfirlýsing frá Vatnajökulsþjóðgarði um samþykki.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á að framlengja stöðuleyfi fyrir húsinu til loka júní 2027.
13.Beiðni um framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara á Raufarhöfn 2026
Málsnúmer 202605049Vakta málsnúmer
Tengir ehf. sækir hér með um framkvæmdarleyfi vegna lagningar ljósleiðara í þéttbýli Raufarhafnar árið 2026. Um er að ræða lagningu ljósleiðara til heimila, fyrirtækja og stofnanna, auk lagningar varaleiðar ljósleiðara í fjarskiptamastur Öryggisfjarskipta vestan þéttbýliskjarnans og lagningar stofnlagnar til að ljúka tvítengingu ljósleiðara til Raufarhafnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita Tengi ehf. framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara í þéttbýli Raufarhafnar.
14.Erindi til skipulags-og framkvæmdaráðs vegna ósk um skilti sem árétti bann við næturgistingu húsbíla og gistibifreiða við Kaldbakstjarnir.
Málsnúmer 202606003Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur beiðni frá eigendum Gestahúsa við Kaldbak varðandi uppsetningu á skilti sem árétti bann við næturgistingu húsbíla og gistibifreiða við Kaldbakstjarnir. Óskað er eftir merkingum á tveimur stöðum:
Við aðkomu norðan Kaldbakstjarna (Kaldbakshöfða)
Við aðkomu sunnan Kaldbakstjarna (vegur frá #85 að fuglaskoðunarhúsi)
Við aðkomu norðan Kaldbakstjarna (Kaldbakshöfða)
Við aðkomu sunnan Kaldbakstjarna (vegur frá #85 að fuglaskoðunarhúsi)
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að koma upp viðeigandi skiltum.
15.Erindi vegna veiða á ref og mink
Málsnúmer 202606031Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Bjarmalandi, félagi atvinnuveiðimanna í ref og mink.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að svara erindinu.
16.Erindi vegna minka- og refaveiða á Austur Sléttu
Málsnúmer 202606034Vakta málsnúmer
Erindi frá æðarbændum á Melrakkasléttu vegna fyrirkomulags refaveiða.
Ráðið leggur til að samningar verði endurskoðaðir um refaveiðar annars vegar og minkaveiðar hins vegar samhliða undirbúningsvinnu við fjárhagsáætlunargerð á haustmánuðum 2026. Athugasemdir og ábendingar landeiganda á Austur-Sléttu verða hafðar til hliðsjónar við þá vinnu.
17.Uppsetning á sviði í Skrúðgarðinn á Húsavík
Málsnúmer 202606036Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur kostnaðarmat fyrir smíði á sviði í skrúðgarðinum á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð ákveður að byggja ekki svið í Skrúðgarðinum að svo stöddu.
18.Ósk um útlitsbreytingu að Héðinsbraut 4, Húsavík
Málsnúmer 202604100Vakta málsnúmer
Rúnar Óskarsson, f.h. Fjallasýnar Rúnars Óskarsonar ehf, óskar eftir samþykki fyrir uppsetningu glugga á vestur- og norðurhlið eignarhluta fyrirtækisins í Héðinsbraut 4. Fyrir liggur rissmynd af fyrirhugaðri breytingu, undirritað samþykki eigenda annara eignarhluta í húsinu og útskýringar vegna fyrirhugaðra breytinga. Erindið var áður til umfjöllunar á fundi ráðsins 5. maí s.l. en afgreiðslu þá frestað og óskað eftir frekari gögnum um fyrirhugaða notkun hússins. Frekari upplýsingar vegna erindisins voru send á byggingarfulltrúa 20. júní.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur gögn málsins ennþá ófullnægjandi og frestar málinu þar til úr hefur verið bætt.
Þorsteinn vék af fundi undir þessum lið.
Þorsteinn vék af fundi undir þessum lið.
Fundi slitið - kl. 16:30.