Ósk um umsögn um gistileyfi í flokki II frá Ásverjum ehf. vegna Veggs gistihús
Málsnúmer 202606065
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 239. fundur - 23.06.2026
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar Norðurþings um rekstrarleyfi til sölu gistingar í viðbyggingu við Vegg í Kelduhverfi.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita sýslumanni jákvæða umsögn þegar fullnægjandi öryggisúttekt húsnæðisins hefur farið fram.