Fara í efni

Erindi til skipulags-og framkvæmdaráðs vegna ósk um skilti sem árétti bann við næturgistingu húsbíla og gistibifreiða við Kaldbakstjarnir.

Málsnúmer 202606003

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 239. fundur - 23.06.2026

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur beiðni frá eigendum Gestahúsa við Kaldbak varðandi uppsetningu á skilti sem árétti bann við næturgistingu húsbíla og gistibifreiða við Kaldbakstjarnir. Óskað er eftir merkingum á tveimur stöðum:
Við aðkomu norðan Kaldbakstjarna (Kaldbakshöfða)
Við aðkomu sunnan Kaldbakstjarna (vegur frá #85 að fuglaskoðunarhúsi)
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að koma upp viðeigandi skiltum.