Fara í efni

Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun og viðbótum á vatnslindum við Fiskeldið Haukamýri, Húsavík

Málsnúmer 202605125

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 239. fundur - 23.06.2026

Fiskeldið Haukamýri óskar leyfis til framkvæmda fyrir aukna vatnstöku á núverandi vatnstökusvæðum fyrirtækisins, annarsvegar í Gvendarsteinsmýri og hinsvegar Haukamýrardal. Markmið með vatnstöku er að ná allt að 450 l/sek af köldu vatni til samræmis við fyrirliggjandi vatnssamninga. Horft er til þess að vinna verkið með minni tækjum til að lágmarka jarðrask. Framkvæmdir verði utan varptíma fugla.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirhugaða framkvæmd. Ráðið leggur áherslu á að verkið verði unnið með sem minnstu jarðraski og utan varptíma fugla.