Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

522. fundur 25. júní 2026 kl. 08:30 - 11:00 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir varaformaður
  • Salbjörg Matthíasdóttir varamaður
    Aðalmaður: Aldey Unnar Traustadóttir
  • Kjartan Páll Þórarinsson formaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
  • Ómar Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
  • Rúnar Traustason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
Dagskrá
Undir lið nr. 2, sátu fundinn Gyde Rudolph og Bergur Elías Ágústsson.

1.Erindi frá Echoes of the Deep

Málsnúmer 202604114Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá stofnendum Echoes of the Deep en þau tóku þátt í Krubbi í mars 2026 með hugmynd um gönguleið frá þéttbýli Húsavíkur að Sjóböðunum. Á gönguleiðinni verði 3 skúlptúrar með tilvísun í hvali. Óskað er eftir 1 milljón króna til að gera frummynd af einum skúlptúr.
Byggðarráð þakkar stofnendum Echoes of the Deep fyrir erindið og felur sveitarstjóra að skoða erindið áfram og leggja fyrir ráðið að nýju.

2.Blágarðar Húsavíkur - Blue Community Garden

Málsnúmer 202606008Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Gyde Rudolph sem óskar eftir að fá að kynna fyrir Norðurþingi verkefni sitt um lítinn fljótandi pall í Húsavíkurhöfn fyrir fræðslu um lífríki sjávar og vísindi því tengdu.

Byggðarráð þakkar Gyde Rudolph fyrir komuna á fundinn og góða kynningu á verkefninu.

Ráðið vísar málinu til afgreiðslu í stjórn hafnasjóðs.

3.Málefnasamningur 2026-2030

Málsnúmer 202606079Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til kynningar málefnasamningur meirihluta sveitarstjórnar Norðurþings fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Lagt fram til kynningar.

4.Ráðning fjármálastjóra

Málsnúmer 202606077Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja tillögur að ráðningarferli fjármálstjóra Norðurþings.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að semja við Mögnum ráðningar um verkefnið og leggja málið fyrir ráðið á næsta fundi.

5.Erindi vegna slita Héraðsnefndar Þingeyinga

Málsnúmer 202404123Vakta málsnúmer

Á 164.fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað:

Undirrituð leggur til að málinu verði vísað á ný til byggðarráðs til frekar úrvinnslu m.t.t. nýrra upplýsinga um eignarhald fasteigna á Laugum og ólíkra óska sveitarstjórna Norðurþings og Þingeyjarsveitar um Þingey, jörð og hlunnindi.
Helena Eydís Ingólfsdóttir.

Tillagan samþykkt samhljóða.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma á fundi með fulltrúum Þingeyjarsveitar vegna slita Héraðsnefndarinnar.

6.Rekstur Norðurþings 2026

Málsnúmer 202602009Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja útsvarstekjur sveitarfélagsins ásamt öðrum lykiltölum í rekstri.
Lagt fram til kynningar.

7.Fasteignamat 2027 í Norðurþingi

Málsnúmer 202606010Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja upplýsingar um fasteignamat 2027 í Norðurþingi.
Fasteignamat í Norðurþingi hækkar að meðaltali á milli ára um 4,2%. Matið á íbúðarhúsnæði hækkar um 3,1% en atvinnuhúsnæði 6,3% á milli ára.

Lagt fram til kynningar.

8.Fjárhagsáætlun Norðurþings 2027-2031

Málsnúmer 202606045Vakta málsnúmer

Í viðhengi er minnisblað um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031.

Í minnisblaðinu er spátímabilið fimm ár því samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum sem liggja fyrir þinginu er lagt til að áætlanagerð sveitarfélaga nái til fimm ára. Frumvarpið hefur þó ekki verið afgreitt.

Eins og vant er þá verður minnisblaðið uppfært næsta haust.
Lagt fram til kynningar.

9.Beiðni um tilnefningu í svæðisráð norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði

Málsnúmer 202311035Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu sem óskar eftir því að Norðurþing tilkynni til ráðuneytisins eins fljótt og við verður komið um breytingar á tilnefndum fulltrúum sveitarfélagsins í svæðisráði norðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarðs eða staðfesti ef engar breytingar hafa orðið á tilnefndum fulltrúum að loknum sveitarstjórnarkosningum. Núverandi svæðisráð er með skipunartíma til 30. janúar 2029.
Byggðarráð tilnefnir Aldey Unnar Traustadóttir í svæðisráð norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og Eystein Heiðar Kristjánsson til vara.

10.Bjarmahlíð rekstur þolendamiðstöðvar 2026

Málsnúmer 202511031Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur tillaga að kostnaðarskiptingu sveitarfélaganna á SSNE svæðinu vegna reksturs Bjarmahlíðar á Akureyri vegna ársins 2027.

Bjarmahlíð er samstarfsverkefni um miðstöð fyrir þolendur ofbeldis og markmiðið að veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu um eðli og afleiðingar ofbeldis notendum þjónustunnar að kostnaðarlausu.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að kostnaðarskiptingu vegna ársins 2027, kostnaður Norðurþings er 1.116.000 kr eða 9,6% af heild sem er í takti við íbúafjölda.

11.Samningur við Bergið Headspace

Málsnúmer 202605063Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur samstarfssamningur milli sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Bergsins headspace.

Bergið headspace veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna frá 12 til 25 ára. Með fræðslu og stuðningi er leitað leiða að bættri líðan og að efla virkni ungmenna í samfélaginu.
Byggðarráð samþykkir samninginn sem er til þriggja ára og er heildarkostnaður Norðurþings 1.600.109 kr. á samningstímanum.

12.Kosning í fulltrúaráð EBÍ

Málsnúmer 202605144Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur bréf frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótarfélag Íslands þar sem upplýst er um meginbreytingar á samþykktum frá síðasta aukafundi fulltrúaráðs félagsins í mars sl. Samkvæmt samþykktunum eiga öll aðildarsveitarfélög EBÍ að kjósa í fulltrúaráðið í kjölfar sveitarstjórnarkosninga.
Byggðarráð tilnefnir Eystein Heiðar Kristjánsson í fulltrúaráð EBÍ og Rúnar Traustason til vara.

13.Fjöldahálpastöðvar á Norðurlandi

Málsnúmer 202605155Vakta málsnúmer

Rauði Krossinn í Eyjafirði óskar eftir því við sveitarfélög á Norðurlandi eystra að þau taki til skoðunar og skráningar með formlegum hætti fjöldahjálparstöðvar í sínu umdæmi.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að fara yfir skráningar fjöldahjálpastöðva í Norðurþingi í samvinnu við viðeigandi aðila.

14.Umsóknir um stofnframlög

Málsnúmer 202309027Vakta málsnúmer

Opið er fyrir umsóknir um stofnframlög til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 183/2020. Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.

15.Fundarboð Hluthafafundur Orkuveitu Húsavíkur ohf.

Málsnúmer 202606061Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundarboð hluthafafundar í Orkuveitu Húsavíkur ohf. Fundurinn verður haldinn þann 7. júlí nk. kl 13:00.
Byggðarráð tilnefnir Bergþór Bjarnason til að fara með atkvæði sveitarfélagsins á hluthafafundi Orkuveitu Húsavíkur ohf.

Tillaga um að söluhagnaður vegna sölu á hlut O.H. í Sjóböð ehf. verði innleystur.
Tillaga um stjórn verði skipuð eftirfarandi:

Guðrún Þóra Hallgrímsdóttir
Eysteinn Heiðar Kristjánsson
Ágúst Sigurður Óskarsson

Til vara:
Reynir Reinhardsson
Ómar Gunnarsson
Steingrímur Hallur Lund

16.Skýrsla um starf flugklasans Air 66N

Málsnúmer 202605154Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til kynningar skýrsla Flugklasans AIR 66N um starfið síðustu mánuði.
Byggðarráð leggur fram eftirfarandi bókun:

Í skýrslu Flugklasans Air 66N er gerð ítarleg grein fyrir vinnu á vettvangi klasans sem farið hefur fram með stuðningi sveitarfélaganna á Norðurlandi og samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og Norðurlandi vestra.
Viðfangsefni klasans eru í raun í fullkomnu samræmi við áherslur ríkistjórnar Íslands eins og þær birtast í nýrri þingsályktun um fjármálaáætlun 2027-2031 þar sem segir að ójöfn dreifing ferðamanna valdi ójöfnu álagi á náttúru, samfélög og innviði og að það sé ætlun ríksins að vinna að dreifingu ferðamanna um landið m.a. með auknum stuðningi við aukið millilandaflug um aðra flugvelli en Keflavík og markvissri uppbyggingu innviða.
Þrátt fyrir þessar áherslur ríkisins er lagt til í þingsályktuninni að framlög til Flugþróunarsjóðs, sem hefur það markmið að styðja uppbyggingu nýrra flugleiða um Akureyri og Egilsstaði til að stuðla að dreifingu ferðamanna um landið, bæta búsetuskilyrði og styrkja atvinnulíf á landsbyggðinni, verði skert og ekki verði um framhald að ræða á 100 mkr. framlagi til sjóðsins.
Að mati okkar eru framangreind atriði úr þingsályktuninni í mótsögn við hvert annað, þar sem á sömu síðu er lögð áhersla á dreifingu ferðamanna um landið og aukinn stuðning við aðra flugvelli en Keflavík og að framlög styðja við markmið flugþróunarsjóðs og fjármála séu skorin niður.
Skilaboð ríksins varðandi uppbyggingu millilandaflugs á Akureyri eru þar af leiðandi afar óskýr. Uppbygging nýrra flugleiða í millilandaflugi eru langtímaverkefni sem þarfnast fyrirsjáanleika og þar af leiðandi hefði verið farsælla að halda 100 mkr. framlaginu sem veitt var vegna ársins 2026 áfram inni í framlögu til málaflokksins.

Byggðarráð ítrekar fyrri áskorun sveitarfélaga á Norðurlandi.
Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra skora á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að koma rekstri, uppbyggingu og markaðssetningu Akureyrarflugvallar fyrir hjá sérstakri stjórn eða félagi, sem hefur það að markmiði að alþjóðaflugvöllurinn sé byggður upp og kynntur sem ein af gáttum Íslands. Jafnframt að tryggja þessari stjórn eða félagi fjármagn til að sinna hlutverki sínu, ásamt því að tryggja fullnægjandi fjármögnun Flugþróunarsjóðs.

17.Fundargerðir Dvalarheimilis aldraðra sf.2026

Málsnúmer 202603113Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð frá stjórnarfundi DA sf. þann 29. maí 2026 ásamt gögnum sem kynnt voru á fundinum.
Lagt fram til kynningar.

18.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fundargerðir 999. fundar og 1000. fundar stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga frá 28. maí og 9.júní sl.
Lagt fram til kynningar.

19.Fundargerðir stjórnar Markþings 2026

Málsnúmer 202603068Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð stjórnar Markþings frá 6.júní sl.
Lagt fram til kynningar.

20.Fundargerðir HNE 2026

Málsnúmer 202603056Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fundargerðir Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, frá 248. fundi frá 3. júní og 249. fundi frá 10.júní sl.
Lagt fram til kynningar.

Byggðarráð vísar fundargerð 249. fundar til kynningar í skipulags- framkvæmdaráði.

21.Umsókn um lóðina Höfði 8A, Húsavík

Málsnúmer 202605096Vakta málsnúmer

Á 239. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað: Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við byggðaráð, í sumarleyfisumboði sveitarstjórnar, að Birki Viðarssyni ehf verði úthlutað lóðinni að Höfða 8A til samræmis við fyrirliggjandi tillögu að afmörkun.
Byggðarráð, í sumarleyfi sveitarstjórnar, samþykkir fyrirliggjandi tillögu skipulags- og framkvæmdarðs.

22.Ósk um framkvæmdaleyfi fyrir endurnýjun og viðbótum á vatnslindum við Fiskeldið Haukamýri, Húsavík

Málsnúmer 202605125Vakta málsnúmer

Á 239. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað: Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirhugaða framkvæmd. Ráðið leggur áherslu á að verkið verði unnið með sem minnstu jarðraski og utan varptíma fugla.
Byggðarráð, í sumarleyfi sveitarstjórnar, samþykkir fyrirliggjandi tillögu skipulags- og framkvæmdaráðs.

23.Ósk um gerð nýs lóðarleigusamnings fyrir Héðinsbraut 7

Málsnúmer 202606057Vakta málsnúmer

Á 239. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað: Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við byggðaráð, í sumarleyfisumboði sveitarstjórnar, að gerður verði lóðarsamningur fyrir Héðinsbraut 7 á grundvelli fyrirliggjandi deiliskipulags.
Byggðarráð, í sumarleyfi sveitarstjórnar, samþykkir fyrirliggjandi tillögu skipulags- og framkvæmdaráðs.

24.GG2023 ehf.óskar tímabundinna afnota á lóðinni Hrísmóar 5 til uppsetningar á gámatjaldi vegna tilraunaverkefnis

Málsnúmer 202606050Vakta málsnúmer

Á 239. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað: Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við byggðaráð að GG2023 verði boðin tímabundin afnot af lóðinni að Hrísmóum 5 til loka september 2031. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs verði falið að gera drög að samningi um lóðarafnotin og kynna fyrir ráðinu við fyrsta tækifæri.
Umsækjandi þarf að leggja fram skýrari gögn vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar, m.a. afstöðu hennar til lóðarmarka og byggingarreits.
Byggðarráð, í sumarleyfi sveitarstjórnar, samþykkir fyrirliggjandi tillögu skipulags- og framkvæmdaráðs.

Fundi slitið - kl. 11:00.