Erindi frá Echoes of the Deep
Málsnúmer 202604114
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 522. fundur - 25.06.2026
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá stofnendum Echoes of the Deep en þau tóku þátt í Krubbi í mars 2026 með hugmynd um gönguleið frá þéttbýli Húsavíkur að Sjóböðunum. Á gönguleiðinni verði 3 skúlptúrar með tilvísun í hvali. Óskað er eftir 1 milljón króna til að gera frummynd af einum skúlptúr.
Byggðarráð þakkar stofnendum Echoes of the Deep fyrir erindið og felur sveitarstjóra að skoða erindið áfram og leggja fyrir ráðið að nýju.