Fjárhagsáætlun Norðurþings 2027-2031
Málsnúmer 202606045
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 522. fundur - 25.06.2026
Í viðhengi er minnisblað um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga fyrir árin 2027-2031.
Í minnisblaðinu er spátímabilið fimm ár því samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum sem liggja fyrir þinginu er lagt til að áætlanagerð sveitarfélaga nái til fimm ára. Frumvarpið hefur þó ekki verið afgreitt.
Eins og vant er þá verður minnisblaðið uppfært næsta haust.

Lagt fram til kynningar.
Byggðarráð Norðurþings - 526. fundur - 27.08.2026
Fyrir byggðarráði liggur ferli áætlanagerðar næstu vikurnar.
Lagt fram til kynningar.
Fjölskylduráð - 251. fundur - 03.11.2026
Fjölskylduráð hefur til umfjöllunar fjárhagsáætlun ársins 2027.
Fjölskylduráð vísar fjárhagsáætlunum ársins 2027 til byggðarráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 247. fundur - 03.11.2026
Skipulags- og framkvæmdaráð hefur til umfjöllunar fjárhagsáætlun ársins 2027.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar fyrirliggjandi tillögu að áætlun til áframhaldandi umræðu í byggðarráði.
Fjölskylduráð - 252. fundur - 17.11.2026
Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir áætlun málasviðs 06 Æskulýðs og íþróttamál til kynningar og umræðu.
Rebekka, Elísabet, Guðni og Ann-Charlotte leggja til eftirfarandi tillögu. Undirrituð leggja til að onunartími sundlaugar Húsavíkur verði lengdur til kl 21:00 mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga og til 18:30 á föstudögum. Önnur skerðing sem gerð var á opnunartíma sundlaugarinnar á núlíðandi ári verði endurskoðuð í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2028.
Tillagan er samþykkt samhljóða.
Fulltrúi M-Lista Samfélagsins samþykkir tillögu um rýmri opnunartíma Sundlaugarinnar á Húsavík. Mikil óánægja var meðal íbúa og ferðafólks með skertan opnunartíma á árinu 2026 sem var ákveðinn af meirihluta sveitarstjórnar.
Þessi breyting þjónar íbúum og ferðafólki og verður til að auka aðsókn samhliða nýju þjónustuframboði í sundlauginni (sauna og infra rauður klefi).
Ágúst Sigurður Óskarsson, M-Lista Samfélagsins.