Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
1.Gjaldskrár Norðurþings 2027
Málsnúmer 202610013Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggja fyrir uppfærðar gjaldskrár fyrir 2027.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar fyrirliggjandi tillögum að gjaldskrám skipulags- og umhverfissviðs 2027 til kynningar í byggðarráði og staðfestingar í sveitarstjórn.
2.Fjárhagsáætlun Norðurþings 2027-2031
Málsnúmer 202606045Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð hefur til umfjöllunar fjárhagsáætlun ársins 2027.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar fyrirliggjandi tillögu að áætlun til áframhaldandi umræðu í byggðarráði.
3.Framkvæmdaáætlun 2027-2031
Málsnúmer 202609025Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð hafa til umfjöllunar drög að framkvæmdaáætlun 2027-2031.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar framkvæmdaáætlun 2027 - 2031 til umræðu í byggðarráði.
4.Erindi frá forstöðumönnum Miðjunnar hæfingu og dagþjónustu og Borgarinnnar frístundar og skammtímadvalar
Málsnúmer 202609185Vakta málsnúmer
Á 250. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð þakkar Sunnu Mjöll og Önnu Björgu fyrir komuna á fundinn. Ráðið vísar þeim hluta erindisins sem fjallar um aðgengi, hljóðvist, viðhald og brunavarnir til skipulags- og framkvæmdaráðs og leggur áherslu á að gerð verði áætlun um umbætur í Sólbrekku 28.
Miðjan og Borgin hafa lengi verið í húsnæði sem horft hefur verið til að sé tímabundin lausn. Mikilvægt er að finna þessari mikilvægu starfsemi varanlega staðsetningu.
Fjölskylduráð þakkar Sunnu Mjöll og Önnu Björgu fyrir komuna á fundinn. Ráðið vísar þeim hluta erindisins sem fjallar um aðgengi, hljóðvist, viðhald og brunavarnir til skipulags- og framkvæmdaráðs og leggur áherslu á að gerð verði áætlun um umbætur í Sólbrekku 28.
Miðjan og Borgin hafa lengi verið í húsnæði sem horft hefur verið til að sé tímabundin lausn. Mikilvægt er að finna þessari mikilvægu starfsemi varanlega staðsetningu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að gera umbótaáætlun vegna Sólbrekku 28 og leggja fyrir ráðið að nýju. Sveitarfélagið hefur haft til skoðunar að finna starfseminni varanlega staðsetningu til frambúðar.
5.Ósk um stækkun tjaldsvæðis á Raufarhöfn
Málsnúmer 202610113Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags-og framkvæmdaráði liggur erindi þar sem óskað er eftir stækkun á tjaldstæði á Raufarhöfn.
Skipulags- og framkvæmdaráð er ekki reiðubúið að stækka tjaldstæðið á Raufarhöfn til samræmis við fyrirliggjandi tillögu að svo stöddu.
6.Erindi til Norðurþings um heildstæða endurbóta- og viðhaldsáætlun fyrir Samkomuhúsið að Garðarsbraut
Málsnúmer 202608116Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs, ásamt verkefnastjóra sviðsins og formanni skipulags- og framkvæmdaráðs, fundaði með stjórnarkonum í Leikfélagi Húsavíkur þann 22. október sl. Fyrir liggja skýrslur um ástand Samkomuhússins á Húsavík, annars vegar frá Rannsóknarstofnun Byggingariðnaðarins frá 1983 og hins vegar önnur unnin af Mannviti 2016 sem kynnt var fyrir ráðinu í október sl.
Ráðið telur ekki skynsamlegt að ráðast í verulegar endurbætur á húsinu, þar sem viðhaldsþörf hússins og ástand þess myndi kalla á algera endurbyggingu. Ástand hússins, þar með talið burðavirki þess, er með þeim hætti að umfang endurbóta yrði verulegt og kostnaður mikill. Í skýrslunni kemur m.a. fram að gera megi ráð fyrir því að byggingin sé ójárnbent.
Ráðið leggur til að horft verði til framtíðar í þessu máli og að unnið verði að uppbyggingu menningarhúss í samráði við Leikfélag Húsavíkur og aðra notendur, þannig að tryggt verði að húsnæðið standist þær kröfur sem til þess eru gerðar og nýtist komandi kynslóðum sem mest.
Ráðið leggur til að hafin verði vinna við hönnun, að lokinni þarfagreiningu, árið 2028 og unnið verði áfram að verkefninu í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins í framhaldi.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar erindinu til byggðarráðs m.t.t. að málið verði á þriggja ára áætlun 2028-2030.
Ráðið leggur til að horft verði til framtíðar í þessu máli og að unnið verði að uppbyggingu menningarhúss í samráði við Leikfélag Húsavíkur og aðra notendur, þannig að tryggt verði að húsnæðið standist þær kröfur sem til þess eru gerðar og nýtist komandi kynslóðum sem mest.
Ráðið leggur til að hafin verði vinna við hönnun, að lokinni þarfagreiningu, árið 2028 og unnið verði áfram að verkefninu í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins í framhaldi.
Skipulags- og framkvæmdaráð vísar erindinu til byggðarráðs m.t.t. að málið verði á þriggja ára áætlun 2028-2030.
7.Starf verkstjóra þjónustumiðstöðvar á Raufarhöfn
Málsnúmer 202610136Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerði skipulags- og framkvæmdaráði grein fyrir stöðu mála varðandi ráðningu verkstjóra þjónustumiðstöðvar á Raufarhöfn. Starfið hefur þegar verið auglýst laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember 2026.
Umsóknarfrestur er til og með 11. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.
8.Bílastæði fyrir ferðabíla - húsbíla og campera
Málsnúmer 202606120Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs hefur fundað með fulltrúum frá ferðaþjónustunni á Húsavík um möguleg bílastæði og þjónustu fyrir gesti á ferðabílum utan háannatíma.
Skipulags- og framkvæmdaráði líst vel á tillögur hópsins um að gera gamla vigtarskúrinn að þjónustuhúsi fyrir ferðamenn sem koma til Húsavíkur utan háannatíma á ferðabílum.
Mikil þörf er á að veita þessum hópi þjónustu eftir að tjaldsvæðinu á Húsavík er lokað í nóvember. Ráðið leggur til að skoðað verði hvort skynsamlegt sé að útbúa almenningssalerni í húsinu sem opin yrðu allt árið.
Ráðið vísar málinu til umfjöllunar í stjórn hafnasjóðs Norðurþings.
Mikil þörf er á að veita þessum hópi þjónustu eftir að tjaldsvæðinu á Húsavík er lokað í nóvember. Ráðið leggur til að skoðað verði hvort skynsamlegt sé að útbúa almenningssalerni í húsinu sem opin yrðu allt árið.
Ráðið vísar málinu til umfjöllunar í stjórn hafnasjóðs Norðurþings.
9.Instavolt hleðslustöðvar Kópasker Raufarhöfn
Málsnúmer 202603106Vakta málsnúmer
InstaVolt hefur fengið vilyrði fyrir styrkjum frá Umhverfis- og orskustofnun til að koma upp hraðhleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla á Kópaskeri og Raufarhöfn. Áætlað er að InstaVolt ljúki uppsetningu stöðvanna fyrir vorið 2027.
Lagt fram til kynningar.
10.Ósk um lóð á Raufarhöfn
Málsnúmer 202610156Vakta málsnúmer
Óskar Jakob Þórisson óskar eftir lóð undir atvinnutæki og vinnuvélar í biðstöðu. Heppilegt væri að hún væri á skjólgóðum stað nærri Raufarhöfn og um 1.000 m² að flatarmáli.
Skipulags- og framkvæmdaráð hefur ekki geymslulóðir af þessari stærðargráðu til ráðstöfunar í sveitarfélaginu.
11.Tillaga að bættum aðgangi að Norðurbæ
Málsnúmer 202610140Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá nemanda í stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um að bæta gönguleiðir í Norðurbænum á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið. Unnið er að umferðaröryggisáætlun sem mun hafa áhrif á gönguleiðir á Húsavík.
12.Erindi til Norðurþings
Málsnúmer 202610138Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Gunnari Marteinssyni, nemanda í stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um viðgerð á götunni við Ketilsbraut.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Gunnari fyrir erindið. Framkvæmdir á Ketilsbraut eru inni á framkvæmdaáætlun.
13.Erindi um að stækka og betrumbæta sundlaug Húsavíkur
Málsnúmer 202610142Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags - og framkvæmdaráði liggur erindi frá Kristjáni Inga Smárasyni, nemanda í stjórnmálafræði við Famhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um stækkun og viðhald á sundlaug Húsavíkur.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Kristjáni fyrir erindið. Ekki eru áform um að ráðast í stækkun á sundlaug Húsavíkur. Áfram stendur til að sinna viðhaldi á búnaði.
14.Að brýna þörf fyrir úrbótum á Samkomuhúsinu á Húsavík og fá skýra ákvörðun um framtíð hússins
Málsnúmer 202610145Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Elísabetu Ingvarsdóttur nemanda í stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir úrbótum á Samkomuhúsinu á Húsavík og skýra ákvörðun um framtíð hússins.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Elísabetu fyrir erindið. Ráðið vísar í bókun undir máli númer 6. á 247. fundi ráðsins.
15.Tillaga um að laga göngustíginn við Botnsvatn
Málsnúmer 202610141Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá nemanda í stjórnmálafræði við Framhaldsskólann á Húsavík þar sem óskað er eftir samtali um að bæta göngustíg í kringum Botnsvatn.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið. Unnið verður áfram að úrbótum á stígum í sveitarfélaginu.
16.Umsókn um lóð á iðnaðarsvæðinu á Bakka
Málsnúmer 202610165Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur umsókn um 8,2 ha lóð á iðnaðarsvæðinu á Bakka frá EyrieDC ehf. Ennfremur liggja fyrir drög að lóðarleigusamningi vegna lóðarinnar. Lóðin sem sótt er um er í deiliskipulagsferli með athugasemdafresti til 7.desember. EyrieDC ehf. óskar jafnframt eftir leyfi til að grafa 41 rannsóknarholur innan byggingarreits lóðarinnar nú í nóvember.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að EyrieDC ehf verði úthlutað, með fyrirvörum, lóðinni eins og hún er kynnt í tillögu að deiliskipulagi. Fyrirvarar eru um gildistöku deiliskipulags og samninga væntanlegs lóðarhafa um orkukaup og raforkuflutning til fyrirhugaðrar starfsemi. Fyrirvarar eru nánar útlistaðir í viðauka við lóðarleigusamning. Ráðið heimilar byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir rannsóknarholum.
Fundi slitið - kl. 15:30.
Kristín Anna Hreinsdóttir, fjármálastjóri, sat fundinn undir liðum 1-3.