Bílastæði fyrir ferðabíla - húsbíla og campera
Málsnúmer 202606120
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 240. fundur - 07.07.2026
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti tillögur varðandi bílastæði og þjónustu fyrir ferðabíla á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir tillögu sviðsstjóra þess efnis að setja á fót vinnuhóp/spretthóp til að vinna að og útfæra tillögur að staðsetningu bílastæða og þjónustu við ferðabíla árið um kring.