Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings
Dagskrá
1.Gjaldskrá Hafna Norðurþings 2027
Málsnúmer 202610133Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur gjaldskrá Hafna Norðurþings 2027.
Stjórn Hafnasjóðs vísar drögum af gjaldskrá vegna ársins 2027 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
2.Fjárhags- og framkvæmdaáætlun Hafnasjóðs Norðurþings 2027
Málsnúmer 202610134Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur Rekstrar og fjárfestingaáætlun 2027 og næstu þriggja ára þar á eftir.
Stjórn Hafnasjóðs vísar áætlunum Hafnasjóðs Norðurþings til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
3.Framkvæmdir við Þvergarð 2027
Málsnúmer 202611018Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur niðurstaða útboðs vegna framkvæmda við Þvergarð á árinu 2027.
Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
4.Bílastæði fyrir ferðabíla - húsbíla og campera
Málsnúmer 202606120Vakta málsnúmer
Á 247. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað:
Skipulags- og framkvæmdaráði líst vel á tillögur hópsins um að gera gamla vigtarskúrinn að þjónustuhúsi fyrir ferðamenn sem koma til Húsavíkur utan háannatíma á ferðabílum.
Mikil þörf er á að veita þessum hópi þjónustu eftir að tjaldsvæðinu á Húsavík er lokað í nóvember. Ráðið leggur til að skoðað verði hvort skynsamlegt sé að útbúa almenningssalerni í húsinu sem opin yrðu allt árið.
Ráðið vísar málinu til umfjöllunar í stjórn hafnasjóðs Norðurþings.

Stjórn Hafnasjóðs felur hafnastjóra að skoða málið með skipulags- og framkvæmdaráði og leggja fyrir ráðið að nýju.
5.Ýmis mál vegna rekstrar og fjárfestingar
Málsnúmer 202309051Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja ýmismál vegna rekstrar.
Lagt fram til kynningar.
6.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 202601072Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs Norðurþings liggja 486. fundargerð og 487. fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundirnir fóru fram 2. október og 21. október sl.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 13:26.