Fara í efni

Erindi til Norðurþings um heildstæða endurbóta- og viðhaldsáætlun fyrir Samkomuhúsið að Garðarsbraut

Málsnúmer 202608116

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 243. fundur - 08.09.2026

Skipulags- og framkvæmdaráði barst erindi frá stjórn Leikfélags Húsavíkur þar sem óskað er eftir að unnin verði heildstæð og tímasett endurbóta og viðhaldsáætlun fyrir samkomuhúsið að Garðarsbraut 22.
Stjórn leikfélagsins óskaði jafnframt eftir að sitja fund ráðsins og fara yfir stöðu viðhaldsmála í samkomuhúsinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að fá tilboð í heildarúttekt á ástandi hússins, með sérstöku tilliti til burðarþols.

Skipulags- og framkvæmdaráð - 245. fundur - 13.10.2026

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráð liggur skýrsla um ástand Samkomuhússins á Húsavík, unnin af Mannviti 2016, sem sviðsstjóri kynnti fyrir ráðinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur skýrsluna frá 2016 vera fullnægjandi svo taka megi ákvörðun um framtíð byggingarinnar varðandi viðhald og endurbætur.
Ráðið felur sviðsstjóra að kalla til samráðsfundar með fulltrúum úr stjórn Leikfélags Húsavíkur ásamt kjörnum fulltrúum úr meiri- og minnihluta þar sem skýrslan verði rædd sem og næstu skref varðandi framtíð hússins.