Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
1.Hljóðvist í Sundlauginni á Raufarhöfn - Erindi til skipulags- og framkvæmdaráðs
Málsnúmer 202610045Vakta málsnúmer
Erindi frá íbúum á Raufarhöfn vegna hljóðvistar og útsýnis í sundlaug Raufarhafnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar íbúum fyrir erindið. Ráðið telur ekki mögulegt að ráðast í þær framkvæmdir sem íbúar á Raufarhöfn kalla eftir á næsta ári en vísar erindinu til gerðar framkvæmdaáætlunar 2028.
2.Erindi til Norðurþings um heildstæða endurbóta- og viðhaldsáætlun fyrir Samkomuhúsið að Garðarsbraut
Málsnúmer 202608116Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráð liggur skýrsla um ástand Samkomuhússins á Húsavík, unnin af Mannviti 2016, sem sviðsstjóri kynnti fyrir ráðinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur skýrsluna frá 2016 vera fullnægjandi svo taka megi ákvörðun um framtíð byggingarinnar varðandi viðhald og endurbætur.
Ráðið felur sviðsstjóra að kalla til samráðsfundar með fulltrúum úr stjórn Leikfélags Húsavíkur ásamt kjörnum fulltrúum úr meiri- og minnihluta þar sem skýrslan verði rædd sem og næstu skref varðandi framtíð hússins.
Ráðið felur sviðsstjóra að kalla til samráðsfundar með fulltrúum úr stjórn Leikfélags Húsavíkur ásamt kjörnum fulltrúum úr meiri- og minnihluta þar sem skýrslan verði rædd sem og næstu skref varðandi framtíð hússins.
3.Áætlanir vegna ársins 2027-2030
Málsnúmer 202609122Vakta málsnúmer
Á 529. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi ramma og vísar þeim til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði.
Lagt fram til kynningar.
4.Þjónustustefna Norðurþings
Málsnúmer 202305116Vakta málsnúmer
Á 529. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð heldur áfram vinnu sinni við þjónustustefnu Norðurþings samhliða fjárhagsáætlunargerð. Ráðið vísar þjónustustefnu einnig til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði. Byggðarráð stefnir að rafrænu samráði við íbúa við gerð stefnunar.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að koma ábendingum ráðsins til skila.
5.Hugmynd að vegaumbótum um Öxarfjörð
Málsnúmer 202609168Vakta málsnúmer
Gunnar Guðmundarson á Ærlæk II í Öxarfirði kynnir sveitarstjórnum Norðurþings, Langanesbyggðar og Tjörneshrepps tillögur sínar að vegaumbótum í Öxarfirði.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar Gunnari Guðmundarsyni fyrir erindið.
6.Ósk um leyfi til borunar eftir heitu vatni á landi Húsavíkur 2026
Málsnúmer 202610026Vakta málsnúmer
Orkuveita Húsavíkur ohf. óskar hér með eftir leyfi til að bora allt að 10 hitastigulsholur í landi Húsavíkur. Tilgangur holanna er jarðhitarannsóknir og leit að heitu vatni. Horft er til þess að holur verði 60-90 m djúpar, en þó er mögulegt að farið verði niður í allt að 200 til 400m dýpi ef tilefni telst til. Óskað er eftir að bora holur út frá minnisblöðum í viðhengi. Staðsetning holanna tekur mið af því að auðvelt verði að koma tækjum að og frá borstað.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirhugaðar boranir á vegum Orkuveitu Húsavíkur. Borholur á Bakkahöfða skulu vera innan iðnaðarsvæðis skv. gildandi aðalskipulagi.
7.Ósk um umsögn vegna endurskoðunar stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs
Málsnúmer 202610008Vakta málsnúmer
Náttúruverndarstofnun óskar umsagnar um verkefnislýsingu fyrir endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs sem nú er í kynningu til 28. október n.k. Í verkefnislýsingunni er gerð grein fyrir fyrirhugaðri endurskoðun stjórnunar- og verndaráætlunar þjóðgarðsins, helstu viðfangsefnum vinnunnar, vinnuferli og áfangaskiptingu. Þar er jafnframt fjallað um hvernig staðið verður að samráði og þátttöku hagaðila og almennings við gerð nýrrar áætlunar. Verkefnislýsingin markar ramma utan um þá vinnu sem fram undan er og þau álitaefni sem taka þarf til skoðunar.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til að horft verði til heilsárs opnunar inn í Ásbyrgi frá Gljúfrastofu. Að öðru leiti sér ráðið ekki tilefni til að koma sjónarmiðum á framfæri á þessu stigi.
8.Ósk um umsögn vegna nýs aðalskipulags Vopnafjarðarhrepps
Málsnúmer 202610005Vakta málsnúmer
Vopnafjarðarhreppur óskar umsagna um tillögu að nýju aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps sem nú er í kynningu á Skipulagsgátt. Umsagnarfrestur er til 19. nóvember n.k.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við skipulagstillöguna.
9.Umsókn um endurnýjun stöðuleyfis á Röndinni á Kópaskeri
Málsnúmer 202609128Vakta málsnúmer
Hugo Hultin sækir um stöðuleyfi fyrir geymslugáma á Röndinni á Kópaskeri.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs fyrir tvo 40 feta gáma og tilheyrandi þaki.
10.Ósk um stöðuleyfi fyrir veðurhlíf yfir rafgeymi að Hrísmóum 2
Málsnúmer 202609178Vakta málsnúmer
Syntholene óskar eftir stöðuleyfi fyrir veðurhlíf yfir rafgeymi að Hrísmóum 2. Fyrir liggja teikningar af skýlinu. Veðurhlífin yrði klædd hvítri bárujárnsklæðningu sem er í takti við nánasta umhverfi. Fyrir liggur samþykki Orkuveitu Húsavíkur sem er lóðarhafi.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir stöðuleyfi fyrir veðurhlífinni með sama gildistíma og áður samþykkt stöðuleyfi.
11.Ósk um stofnun lóðar úr landi Meiðavalla
Málsnúmer 202609173Vakta málsnúmer
Margrét Hjálmarsdóttir merkjalýsandi, f.h. Ágústu Ágústsdóttir jarðareiganda, óskar samþykkis Norðurþings fyrir stofnun lóðar úr landi Meiðavalla. Lóðin er 62.139 m² að flatarmáli. Með erindi fylgja drög að merkjalýsingu sem innifelur teikningu af fyrirhugaðri lóð og hnitsetningu lóðarmarka. Jafnframt er þess óskað að ný lóð fái heitið Meiðavellir 2.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðarstofnunin verði samþykkt. Ráðið samþykkir að lóðin fái heitið Meiðavellir 2.
12.Ósk um niðurtekt á kant og stækkun bílastæðis við Baldursbrekku 15
Málsnúmer 202610003Vakta málsnúmer
Hermann Örn Sigurðsson að Baldursbrekku 15 óskar eftir leyfi til að útbúa nýtt bílastæði á lóð sinni að Baldurbrekku 15. Hluti þeirrar framkvæmdar væri niðurtekt á gangstétt og kanntsteini.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir ósk lóðarhafa að Baldursbrekku 15 um leyfi fyrir nýtt bílastæði á lóðinni. Niðurtekt á gangstétt og kantsteini verði gerð á kostnað lóðarhafa og í samráði við skipulags- og umhverfissvið sveitarfélagsins.
13.Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Bakka - 3. áfangi
Málsnúmer 202601015Vakta málsnúmer
Nú er liðinn athugasemdafrestur vegna kynningar á vinnslutillögu deiliskipulags 3. áfanga iðnaðarsvæðis á Bakka. Umsagnir bárust frá 8 aðilum. Umsagnir Vegagerðinnar, Minjastofnunar og Náttúruverndarstofnunar fela ekki í sér ábendingar á þessu stigi vegna skipulagsvinnunnar en umsagnir Rarik, Landsnets, Náttúrufræðistofnunar, Heilbrigðiseftirlits og Landverndar innihalda ábendingar sem nýttar verða til frekari vinnslu verkefnisins.
Fyrir utan framkomnar ábendingar við kynningu skipulagstillögunnar hefur hönnunarvinna vegna fyrirhugaðs gagnavers leitt í ljós að þörf er á stærri lóð en áður var talið. Með hliðsjón af nýrri fornminjaskráningu er nú horft til þess að staðsetja lóð gagnaversins nær þjóðvegi en reiknað var með við kynningu vinnslutillögunnar.
Fyrir utan framkomnar ábendingar við kynningu skipulagstillögunnar hefur hönnunarvinna vegna fyrirhugaðs gagnavers leitt í ljós að þörf er á stærri lóð en áður var talið. Með hliðsjón af nýrri fornminjaskráningu er nú horft til þess að staðsetja lóð gagnaversins nær þjóðvegi en reiknað var með við kynningu vinnslutillögunnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna áfram að gerð tillögu að deiliskipulagi svæðisins með hliðsjón af þeim ábendingum sem fram komu við kynningu vinnslutillögu.
Fundi slitið - kl. 15:20.