Ósk um leyfi til borunar eftir heitu vatni á landi Húsavíkur 2026
Málsnúmer 202610026
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 245. fundur - 13.10.2026
Orkuveita Húsavíkur ohf. óskar hér með eftir leyfi til að bora allt að 10 hitastigulsholur í landi Húsavíkur. Tilgangur holanna er jarðhitarannsóknir og leit að heitu vatni. Horft er til þess að holur verði 60-90 m djúpar, en þó er mögulegt að farið verði niður í allt að 200 til 400m dýpi ef tilefni telst til. Óskað er eftir að bora holur út frá minnisblöðum í viðhengi. Staðsetning holanna tekur mið af því að auðvelt verði að koma tækjum að og frá borstað.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir fyrirhugaðar boranir á vegum Orkuveitu Húsavíkur. Borholur á Bakkahöfða skulu vera innan iðnaðarsvæðis skv. gildandi aðalskipulagi.