Skipulags- og framkvæmdaráð
Dagskrá
Helga Sveinbjörnsdóttir, Unnur Lilja Erlingsdóttir, Helga Sigurjónsdóttir og Heiðar Smári Þorvaldsson, fulltrúar úr stjórn Leikfélags Húsavíkur, sátu fundinn undir lið 1.
1.Erindi til Norðurþings um heildstæða endurbóta- og viðhaldsáætlun fyrir Samkomuhúsið að Garðarsbraut
Málsnúmer 202608116Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráði barst erindi frá stjórn Leikfélags Húsavíkur þar sem óskað er eftir að unnin verði heildstæð og tímasett endurbóta og viðhaldsáætlun fyrir samkomuhúsið að Garðarsbraut 22.
Stjórn leikfélagsins óskaði jafnframt eftir að sitja fund ráðsins og fara yfir stöðu viðhaldsmála í samkomuhúsinu.
Stjórn leikfélagsins óskaði jafnframt eftir að sitja fund ráðsins og fara yfir stöðu viðhaldsmála í samkomuhúsinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að fá tilboð í heildarúttekt á ástandi hússins, með sérstöku tilliti til burðarþols.
2.Skipulags- og umhverfissvið - kynning
Málsnúmer 202606114Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti sitt starf og helstu verkefni sviðsins.
Lagt fram til kynningar.
3.Lystigarður á Raufarhöfn
Málsnúmer 202608122Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá Önnu Fjólu Hilmisdóttur þar sem sveitarfélagið er hvatt til að skoða uppbyggingu lystigarðs á Raufarhöfn.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið.
4.Samgöngur og skipulag
Málsnúmer 202609017Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð hefur til kynningar erindi frá Vegagerðinni varðandi samgöngur og skipulag.
Lagt fram til kynningar.
5.Borgarhólsskóli - Erindi varðandi öryggismál í skólanum.
Málsnúmer 202608069Vakta málsnúmer
Á 245. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð þakkar áheyrnarfulltrúum Borgarhólsskóla fyrir komuna og vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Fjölskylduráð þakkar áheyrnarfulltrúum Borgarhólsskóla fyrir komuna og vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Skipulags- og framkvæmdarráð leggur til við sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að efla öryggismál í Borgarhólsskóla með kaupum og uppsetningu á öryggiskerfi. Til hliðsjónar við uppsetningu verði horft til reglna um öryggismyndavélar (rafræna vöktun) í íslenskum skólum, sem fylgja lögum og reglum um rafræna vöktun, svo sem reglum nr. 50/2023 og lögum um persónuvernd.
6.Umsókn um rekstur Hnitbjargar
Málsnúmer 202608135Vakta málsnúmer
Á 526. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð þakkar fyrir umsóknina og vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið. Í undirbúningi er að auglýsa húsið til leigu.
7.Framkvæmdaáætlun 2027-2031
Málsnúmer 202609025Vakta málsnúmer
Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggja drög að nýrri framkvæmdaáætlun Norðurþings fyrir 2027-2031.
Lagt fram til kynningar.
8.Umferðaröryggisáætlun
Málsnúmer 202608108Vakta málsnúmer
Sviðsstjóri kynnti fyrir ráðinu tilboð í gerð umferðaröryggisáætlunar frá verkfræðistofunni Eflu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna viðauka að upphæð 4 m. kr. við gildandi fjárhagsáætlun og taka tilboði frá Eflu í verkið.
9.Umsókn um rannsóknarleyfi
Málsnúmer 202509134Vakta málsnúmer
Solstice Materials ehf óska leyfis til jarðkönnunar vegna leitar að pozzolanvirkum steinefnum til sementsframleiðslu. Erindi frá fyrirtækinu var áður tekið fyrir á fundi 7. júlí og 11. ágúst s.l.
Nú liggur fyrir nýtt minnisblað/drög að viljayfirlýsingu vegna fyrirhugaðra rannsókna. Afmörkun rannsóknarsvæða hefur verið breytt frá þeim hugmyndum sem kynntar voru í júlí. Annarsvegar er afmörkun könnunarsvæðis 1 breytt þannig að hún nái ekki inn á deiliskipulagt iðnaðarsvæði. Svæðið er nú 1,6 km² að flatarmáli. Þar er nú horft til sjö kjarnaborhola og sjö höggborhola í fyrsta áfanga. Gert er ráð fyrir að fyrirliggjandi vegslóðar dugi að mestu til rannsóknarvinnunnar en þó þarf að útbúa stutta slóða vegna nokkura borhola. Horft er til þess að hefja boranir á svæði 1 nú í ágúst. Í seinni áfanga rannsókna vegna svæðis 1 er horft til víðtækari borana. Rannsóknarsvæði 2 spannar um 11,7 km²svæði umhverfis Reyðarárbotna og þar er horft til rannsókna síðar og til nokkurra ára.

Umsókn Solstice (og Steypustöðvarinnar ehf.) um rannsóknarleyfi var samþykkt í skipulags- og framkvæmdaráði 30. september 2025. Skilyrði leyfis fela í sér að allar rannsóknir skuli fara fram í fullu samráði við skipulagsfulltrúa Norðurþings og að svæðið verði lagfært að rannsóknum loknum þannig að varanleg ummerki verði sem minnst. Leyfið gildir til ársloka 2026.
Á grundvelli þessa rannsóknarleyfis samþykkir skipulags- og framkvæmdaráð að félagið fái leyfi til rannsóknarborana á þremur borstöðum á svæði 1, skv. meðfylgjandi minnisblaði og skal haft samráð við skipulagsfulltrúa bæði hvað varðar nánari staðsetningu og framkvæmd. Rannsóknir þessar eru kostaðar og á ábyrgð félagsins á þessu stigi. Unnið verður áfram að samstarfi með félaginu á að kanna fýsileika þess að þróa námuvinnslu í Norðurþingi og vinnslu possolans á iðnaðarsvæðinu á Bakka.

10.Aðalskoðun leiksvæða 2026 - Skólalóðir og leiksvæði
Málsnúmer 202609027Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð hefur til kynningar skýrslur vegna aðalskoðunnar á skólalóðum og leiksvæðum sveitarfélagsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að fjarlægja leiktæki og ganga frá þeim leiksvæðum sem búið er að loka samkvæmt framtíðarsýn Norðurþings um færri en betri leiksvæði. Leiktæki sem eiga möguleika á framhaldslífi fara í yfirhalningu og verður dreift á skipulögð leiksvæði.
11.Ósk um breytingu á innkeyrslu að Fiskifjöru 5
Málsnúmer 202608130Vakta málsnúmer
Áki Hauksson, f.h. Húsfélagsins að Fiskifjöru 5, óskar eftir formlegu samþykki Norðurþings fyrir aðkomu að lóðinni frá Fiskifjöru 5 frá Stangarbakkafjöru.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að gerð verði aðkoma að Fiskifjöru 5 frá Stangarbakkafjöru. Aðkoma frá götu verður nánar afmörkuð á síðara stigi í samráði milli aðila.
12.Ósk um umsögn um tillögu að á vinnslustigi vegna nýs aðalskipulags Tjörneshrepps
Málsnúmer 202608169Vakta málsnúmer
Tjörneshreppur kynnir nú tillögu á vinnslustigi fyrir nýtt aðalskipulag sveitarfélagsins í skipulagsgátt. Kynningartími er til 1. október 2026.
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur ekki athugasemdir við skipulagstillöguna á þessu stigi. Horft er til þess að taka umræðu um skipulagstillöguna aftur í ráðinu síðar í september.
13.Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi FE-1189 Kaldvík hf. Röndin, Kópaskeri
Málsnúmer 202609011Vakta málsnúmer
Matvælastofnun hefur auglýst tillögu að breytingu á rekstrarleyfi fyrir Kaldvík hf á Röndinni við Kópasker. Tekið verður við athugasemdum til og með 23. september 2026.
Lagt fram til kynningar.
14.Tillaga að breytingu á rekstrarleyfi FE-1189 Kaldvík hf. Lóni, Kelduhverfi
Málsnúmer 202609010Vakta málsnúmer
Matvælastofnun hefur auglýst tillögu að breytingu á rekstrarleyfi fyrir Kaldvík hf við Lón í Kelduhverfi. Tekið verður við athugasemdum til og með 23. september 2026.
Lagt fram til kynningar.
15.Deiliskipulag iðnaðarsvæðis á Bakka - 3. áfangi
Málsnúmer 202601015Vakta málsnúmer
Fyrir liggur frumtillaga að deiliskipulagi fyrir lóð undir gagnaver norðan við spennivirki Landsnets unnin af Cowi verkfræðistofu. Skipulagstillagan nær til einnar 5,2 ha lóðar og tengingar hennar við vegakerfi.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á þá afmörkun skipulagstillögunnar og umfang sem framlagður uppdráttur felur í sér. Ráðið felur skipulagsfulltrúa að kynna fyrirliggjandi hugmyndir á vinnslustigi á kynningarfundi sem fyrirhugaður er um verkefnið 15. september n.k.
16.Ósk um lóðarsamning vegna verkstæðishúss að Höfðabraut, Raufarhöfn
Málsnúmer 202609024Vakta málsnúmer
Snæbjörn Magnússon, f.h. Klifaeigna kt. 500316-0630, óskar eftir að gerður verði nýr lóðarleigusamningur fyrir verkstæðishús fyrirtækisins við Höfðabraut (L154516). Eldri samningur um 1.800 m² lóð er útrunninn. Skipulagsfulltrúi kynnti rissmynd af um 1.360 m² lóð umhverfishúsið sem búið er að kynna lóðarhafa.
Skipulagsfulltrúa er falið að fullvinna lóðaruppdrátt á grunni fyrirliggjandi rissmyndar. Ráðið leggur til að lóðin fái heitið Höfðabraut 17. Ráðið leggur til við sveitarstjórn að gerður verði nýr lóðarsamningur við lóðarhafa á grunni fyrirliggjandi tillögu að afmörkun lóðarinnar.
Fundi slitið - kl. 15:30.