Umsókn um rekstur Hnitbjargar
Málsnúmer 202608135
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 526. fundur - 27.08.2026
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Snæbirni Magnússyni þar sem sótt er um rekstur félagsheimilisins Hnitbjargar á Raufarhöfn.
Byggðarráð þakkar fyrir umsóknina og vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð - 243. fundur - 08.09.2026
Á 526. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð þakkar fyrir umsóknina og vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
Skipulags- og framkvæmdaráð þakkar fyrir erindið. Í undirbúningi er að auglýsa húsið til leigu.