Byggðarráð Norðurþings
Dagskrá
1.Lóðarvefur
Málsnúmer 202608107Vakta málsnúmer
Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og málinu vísað til byggðarráðs til frekari úrvinnslu.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir ráðið að nýju.
2.Umsókn um rekstur Hnitbjargar
Málsnúmer 202608135Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Snæbirni Magnússyni þar sem sótt er um rekstur félagsheimilisins Hnitbjargar á Raufarhöfn.
Byggðarráð þakkar fyrir umsóknina og vísar erindinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.
3.Norðurþing 20 ára
Málsnúmer 202608142Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur að ræða 20 ára afmæli sveitarfélagsins.
Byggðarráð stefnir á að fagna 20 ára afmælinu á næstu vikum og felur sveitarstjóra að vinna að málinu og ræða við hlutaðeigandi aðilia vegna skipulagningar á viðburðum í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins.
4.Viljayfirlýsing um ál endurvinnslu á Bakka
Málsnúmer 202601020Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur viðauki við viljayfirlýsingu um álendurvinnslu á Bakka.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og felur sveitarstjóra að undirrita hann.
5.Ósk um endurnýjun samstarfssamnings milli Norðurhjara og Norðurþings árið 2027
Málsnúmer 202608133Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá stjórn Norðurhjara þar sem óskað er eftir endurnýjun samnings við Norðurþing vegna ársins 2027.
Byggðarráð samþykkir að framlengja samning við Norðurhjara um eitt ár og vísar málinu til fjárhagsáætlunar vinnu næsta árs.
6.Útboð á vátryggingum Norðurþings og tengdra stofnanna
Málsnúmer 202604026Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur niðurstaða útboðs á vátryggingum Norðurþings.
Lagt fram til kynningar.
7.Fjárhagsáætlun Norðurþings 2027-2031
Málsnúmer 202606045Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur ferli áætlanagerðar næstu vikurnar.
Lagt fram til kynningar.
8.Starfshópur um rekstur Slökkviliðs Norðurþings
Málsnúmer 202608039Vakta málsnúmer
Á 525. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað: Byggðarráð felur sveitarstjóra að leggja fyrir ráðið á næsta fundi uppfært erindisbréf ásamt tilnefningum í starfshópinn.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og tilnefnir í starfshópinn Helenu Eydísi Ingólfsdóttur, Kjartan Pál Þórarinsson og Rúnar Traustason. Ásamt slökkviliðsstjóra Henning Þór Aðalmundssyni.
9.Erindi frá aðalstjórn
Málsnúmer 202608051Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá aðalstjórn Völsungs.
Byggðarráð samþykkir að styrkja Völsung um 5.560.275 kr. vegna kostnaðar við breytingar á framkvæmdastjórn á árinu og verður upphæðinni ráðstafað af styrkjum byggðarráðs.
10.Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga
Málsnúmer 202608085Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundarboð frá Jafnréttisstofu um Landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga.
Aldey Unnar Traustadóttir sækir fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.
11.Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga
Málsnúmer 202608095Vakta málsnúmer
Innviðaráðuneytið býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Fræðslan fer fram á fjarfundi (Teams) og í boði eru tvær tímasetningar til að velja úr:
Miðvikudagur 9. september kl. 16-17:30
Fimmtudagur 10. september kl. 11-12:30
Miðvikudagur 9. september kl. 16-17:30
Fimmtudagur 10. september kl. 11-12:30
Byggðarráð þakkar innviðaráðuneytinu og Samtökunum '78 fyrir boð á fræðslu um hinsegin málefni.
Á sama tíma vill ráðið fagna þessu framtaki og leggja áherslu á mikilvægi þess að auka þekkingu og færni innan stjórnsýslunnar í málefnum hinsegin fólks, til að tryggja áframhaldandi framfarir, jafnrétti og inngildingu í sveitarfélaginu. Fræðsla sem þessi er dýrmætt skref í átt að auknu jafnrétti og fagmennsku í öllu starfi sveitarfélagsins.
Á sama tíma vill ráðið fagna þessu framtaki og leggja áherslu á mikilvægi þess að auka þekkingu og færni innan stjórnsýslunnar í málefnum hinsegin fólks, til að tryggja áframhaldandi framfarir, jafnrétti og inngildingu í sveitarfélaginu. Fræðsla sem þessi er dýrmætt skref í átt að auknu jafnrétti og fagmennsku í öllu starfi sveitarfélagsins.
12.Fundargerðir stjórnar Markþings 2026
Málsnúmer 202603068Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur 5. fundargerð stjórnar Markþings frá 11. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.
13.Fundargerðir SSNE 2026
Málsnúmer 202601039Vakta málsnúmer
Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 85. fundar stjórnar SSNE.
Byggðarráð vill taka undir bókun SSNE úr fundargerð 85. fundar um Heilbrigðisetirlit Norðurlands Eystra.
Ráðið vill leggja sérstaka áherslu á eftirfarandi: ,,Stjórnin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi þess að starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til loka árs 2026, að hagsmunir starfsfólks verði tryggðir og að skýrt liggi fyrir hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga áður en breytingarnar taka gildi.''
Ráðið vill leggja sérstaka áherslu á eftirfarandi: ,,Stjórnin leggur jafnframt áherslu á mikilvægi þess að starfsemi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra verði óskert til loka árs 2026, að hagsmunir starfsfólks verði tryggðir og að skýrt liggi fyrir hvaða verkefni verða áfram á ábyrgð sveitarfélaga áður en breytingarnar taka gildi.''
Fundi slitið - kl. 10:55.