Lóðarvefur
Málsnúmer 202608107
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Norðurþings - 165. fundur - 20.08.2026
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhagsáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir gerð og uppsetningu nýrrar undirsíðu á vefsíðu sveitarfélagsins sem sérstaklega taki til lausra lóða og kynningar á framboði á lausum lóðum fyrir atvinnu- og íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Lagt er til að málinu verði vísað til byggðarráðs til úrvinnslu.
Byggðarráð Norðurþings - 526. fundur - 27.08.2026
Á 165. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað: Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og málinu vísað til byggðarráðs til frekari úrvinnslu.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir ráðið að nýju.
Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og málinu vísað til byggðarráðs til frekari úrvinnslu.