Fara í efni

Sveitarstjórn Norðurþings

165. fundur 20. ágúst 2026 kl. 13:00 - 14:47 Orkustöðin, Hrísmóum 1
Nefndarmenn
  • Aldey Unnar Traustadóttir aðalmaður
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir aðalmaður
  • Ómar Gunnarsson aðalmaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson aðalmaður
  • Kjartan Páll Þórarinsson aðalmaður
  • Rebekka Ásgeirsdóttir aðalmaður
  • Þorsteinn Snævar Benediktsson aðalmaður
  • Bylgja Steingrímsdóttir aðalmaður
  • Ágúst Sigurður Óskarsson 1. varamaður
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
  • Hafrún Olgeirsdóttir stjórnsýslustjóri
  • Aðalgeir Sævar Óskarsson
Fundargerð ritaði: Hafrún Olgeirsdóttir stjórnsýslustjóri
Dagskrá

1.Norðurþing, kosning í nefndir til eins árs, fjögurra ára og tilnefningar á aðalfundi 2026-2030

Málsnúmer 202604065Vakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggja tillögur um kjör fulltrúa í embætti, ráð og stjórnir.
Fulltrúaráð Menningarmiðstöðvar Þingeyinga:
Aðalfulltrúar: Helena Eydís Ingólfsdóttir Kjartan Páll Þórarinsson, Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Ómar Gunnarsson, Rúnar Traustason, og Aldey Unnar Traustadóttir.
Varafulltrúar: Þorsteinn Snævar Benediktsson, Rebekka Ásgeirsdóttir, Ann-Charlotte Fernholm, Ágúst Sigurður Óskarsson, Bylgja Steingrímsdóttir og Salbjörg Matthíasdóttir.

Stjórn Menningarmiðstöðvar:
Aðalfulltrúar: Eysteinn Heiðar Kristjánsson og Halldór Jón Gíslason
Varafulltrúar: Ómar Gunnarsson og Helga Sigurbjörg S. Heide

Stjórn Menningarsjóðs þingeyskra kvenna:
Aðalfulltrúar: Rannveig Benediktsdóttir
Varafulltrúar: Bylgja Steingrímsdóttir

Starfsmenntunarsjóður STH:
Aðalfulltrúi: Svala Rut Stefánsdóttir
Varafulltrúi: Sunna Torfadóttir

Starfskjaranefnd STH:
Aðalfulltrúar: Svala Rut Stefánsdóttir og Ágúst Sigurður Óskarsson
Varafulltrúar: Kjartan Páll Þórarinsson og Rúnar Traustason

Kjaranefnd stéttarfélagsins Framsýnar:
Aðalfulltrúar: Eysteinn Heiðar Kristjánsson og Guðrún Einarsdóttir
Varafulltrúar: Kjartan Páll Þórarinsson og Gunnólfur Sveinsson

Umsjónarnefnd um náttúruvættið Dettifoss, Selfoss og Hafragilsfoss:
Aðalfulltrúi: Svala Rut Stefánsdóttir
Varafulltrúi: Hallur Lund

Stjórn Hvalasafnsins:
Aðalfulltrúi: Þorsteinn Snævar Benediktsson
Varafulltrúi: Bergljót Friðbjarnardóttir

Stjórn Náttúrustofu Norðausturlands:
Aðalfulltrúar: Salbjörg Matthíasdóttir og Sigurgeir Höskuldsson

Stjórn Markþings:
Aðalfulltrúi: Guðni Már Kjartansson
Varafulltrúi: Elísabet Helgadóttir

Fyrirliggjandi tillögur samþykktar samhljóða.

2.Húsnæðismál stjórnsýslunnar

Málsnúmer 202608101Vakta málsnúmer

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir að hafnar verði endurbætur á húsnæði stjórnsýslunnar að Ketilsbraut 7-9. Jafnframt er lagt til að skipulags- og framkvæmdaráði verði falið að áfangaskipta endurbyggingunni og áætlun þar um verði lögð fram í ráðinu eigi síðar en í október.
Til máls tóku: Bergþór, Aldey, Ágúst, Bylgja, Kjartan, Helena og Eysteinn.

Ágúst leggur fram eftirfarandi bókun:
Í ársbyrjun 2024, flutti stjórnsýsla Norðurþings úr Stjórnsýsluhúsinu á Ketilsbraut 7-9 í bráðabirgða leiguhúsnæði. Leigugjald þar er 30 millj. á ári.
Loftgæðum í húsnæðinu á Ketilsbraut var ábótavant vegna langvarandi vanrækslu á fyrirsjáanlegu viðhaldi hússins.
Það er stefna M - Lista Samfélagsins að halda betur við húsnæði sveitarfélagsins, þannig að svona aðstæður skapist ekki.
Á fundi Byggðaráðs 21.07.2026, lagði Rúnar Traustason oddviti listans fram bókun um þetta efni.
Í mars 2026 tók meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks enn eina ákvörðunina að fresta framkvæmdum við endurbætur. Önnur framboð s.s. M Listi Samfélagsins, Samfylkingin og VG mótmæltu þessari ákvörðun. Hún kostar eins árs seinkun, 30 millj. auka í leigu.
Við í M - Lista Samfélagsins styðjum framkomna tillögu.

Ágúst Sigurður Óskarsson M - Lista Samfélagsins

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu og vísar henni til frekari úrvinnslu í skipulags- og framkvæmdaráði.

3.Bygging sundlaugar í Lundi

Málsnúmer 202608102Vakta málsnúmer

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir byggingu nýs sundlaugarkars í Lundi, ásamt frágangi í kringum sundlaugina. Jafnframt að gert verið ráð fyrir í þriggja ára áætlun að gerðar verði endurbætur á búningsklefum á árinu 2028.
Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Til máls tóku: Þorsteinn, Rebekka, Ágúst og Ómar.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.

4.Íþróttahöllin á Húsavík - endurnýjun á gólfi, stúku og búnaði

Málsnúmer 202608103Vakta málsnúmer

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 og þriggja ára áætlun áranna 2028-2030 verði gert ráð fyrir endurnýjun á gólfi og stúku íþróttahallarinnar á Húsavík. Samhliða því verði gert ráð fyrir endurnýjun á ýmsum búnaði vegna skólaíþrótta og íþróttaiðkunar. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Til máls tóku: Kjartan, Aldey, Bergþór og Helena.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.

5.Umsókn um FIFA Arena - minipitch

Málsnúmer 202608104Vakta málsnúmer

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að sótt verði um til KSÍ að fá FIFA Arena mini-pitch í Norðurþing. Lagt er til að fáist umsóknin samþykkt verði völlurinn staðsettur á skólalóð Öxarfjarðarskóla. Jafnframt er lagt til að skipulags- og framkvæmdaráð kostnaðarmeti og geri ráð fyrir kostnaði við undirbúningsvinnu vegna uppsetningar á vellinum og frágangi umhverfis hann í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027. Samráð verði haft í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði um staðsetningu vallarins á skólalóðinni. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Til máls tóku: Kjartan, Ágúst, Aldey og Helena.

Ágúst leggur fram eftirfarandi breytingartillögu:
Ný grein:
Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs og fjölskylduráðs til úrvinnslu.
Út falli:
Samráð verði haft í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði um staðsetningu vallarins á
skólalóðinni. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.

Breytingartillagan er felld með atkvæðum Kjartans, Eysteins, Þorsteins, Helenu, Ómars og Rebekku.
Bylgja sat hjá.

Fyrirliggjandi tillaga meirihluta sveitarstjórnar er samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.
Fylgiskjöl:

6.Salur Borgarhólsskóla

Málsnúmer 202608105Vakta málsnúmer

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir vinnu og kostnaði vegna þarfagreiningar og frumhönnunar á sal Borgarhólsskóla m.t.t. endurbóta á salnum svo hann þjóni enn betur hlutverki sínu sem fjölnotasalur í skólastarfinu. Samráð verði haft í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði um vinnuna. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Til máls tóku: Helena, Aldey, Ágúst og Þorsteinn.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.

7.Yfirborðsfrágangur á Öskjureit

Málsnúmer 202608106Vakta málsnúmer

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir að yfirborðsfrágangi á lóðum sveitarfélagsins á Öskjureit verði lokið. Haft verði samráð við aðliggjandi lóðahafa um framkvæmdina. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu.
Til máls tók: Eysteinn.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.

8.Lóðarvefur

Málsnúmer 202608107Vakta málsnúmer

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhagsáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir gerð og uppsetningu nýrrar undirsíðu á vefsíðu sveitarfélagsins sem sérstaklega taki til lausra lóða og kynningar á framboði á lausum lóðum fyrir atvinnu- og íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Lagt er til að málinu verði vísað til byggðarráðs til úrvinnslu.
Til máls tóku: Helena og Ágúst.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og málinu vísað til byggðarráðs til frekari úrvinnslu.
Fylgiskjöl:

9.Umferðaröryggisáætlun

Málsnúmer 202608108Vakta málsnúmer

Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhagsáætlun ársins 2027 verði gert ráð fyrir vinnu við umferðaröryggisáætlun. Lagt er til að málinu verði vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til úrvinnslu, m.t.t. kostnaðar við gerð áætlunarinnar og fyrirkomulags við vinnu við hana.
Til máls tóku: Eysteinn og Aldey.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða og vísað til skipulags- og framkvæmdaráðs til frekari úrvinnslu.

10.Reglur um stuðning til náms í menntavísindum - Endurskoðun

Málsnúmer 202608024Vakta málsnúmer

Á 244. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:
Fjölskylduráð samþykkir reglur um stuðning til náms í menntavísindum með áorðnum breytingum.
Til máls tók: Rebekka.

Fyrirliggjandi reglur samþykktar samhljóða.

11.Ósk um stækkun lóðar að Höfða 5b, Húsavík

Málsnúmer 202608005Vakta málsnúmer

Á 241. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað:
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að lóðin að Höfða 5 verði stækkuð um 7 m til norðurs þannig að hún nái 13 m norður fyrir húslínu. Ráðið telur heppilegast að skilja eftir 8 m breytt svæði til gatnagerðar milli lóðanna að Höfða 5 og Höfða 7 þó gildandi deiliskipulag gangi út frá 6 m bili. Byggingarfulltrúa verði falið að gera lóðarleigusamning fyrir húsið að Höfða 5 á þeim grunni.
Til máls tók: Eysteinn.

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt samhljóða.


Helena vék af fundi undir þessum lið.

12.Fjölskylduráð - 244

Málsnúmer 2607004FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 244. fundar fjölskylduráðs.
Til máls tók undir lið 8 "Hverfisráð Raufarhafnar 2023-2026": Helena.

Aðrir fundarliðir lagðir fram til kynningar.

13.Skipulags- og framkvæmdaráð - 241

Málsnúmer 2607005FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 241. fundar skipulags- og framkvæmdaráðs.
Lagt fram til kynningar.

14.Byggðarráð Norðurþings - 525

Málsnúmer 2607008FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 525. fundar byggðarráðs.
Lagt fram til kynningar.

15.Orkuveita Húsavíkur ohf - 281

Málsnúmer 2608004FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 281. fundar stjórnar Orkuveitu Húsavíkur.
Lagt fram til kynningar.

16.Byggðarráð Norðurþings - 522

Málsnúmer 2605006FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 522. fundar byggðarráðs.
Fundargerð frá sumarleyfi sveitarstjórnar.
Lagt fram til kynningar.

17.Byggðarráð Norðurþings - 523

Málsnúmer 2606014FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 523. fundar byggðarráðs.
Fundargerð frá sumarleyfi sveitarstjórnar.
Lagt fram til kynningar.

18.Byggðarráð Norðurþings - 524

Málsnúmer 2607007FVakta málsnúmer

Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 524. fundar byggðarráðs.
Fundargerð frá sumarleyfi sveitarstjórnar.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 14:47.