Húsnæðismál stjórnsýslunnar
Málsnúmer 202608101
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Norðurþings - 165. fundur - 20.08.2026
Fulltrúar meirihluta sveitarstjórnar leggja til að í fjárhags- og fjárfestingaáætlunum ársins 2027 verði gert ráð fyrir að hafnar verði endurbætur á húsnæði stjórnsýslunnar að Ketilsbraut 7-9. Jafnframt er lagt til að skipulags- og framkvæmdaráði verði falið að áfangaskipta endurbyggingunni og áætlun þar um verði lögð fram í ráðinu eigi síðar en í október.
Ágúst leggur fram eftirfarandi bókun:
Í ársbyrjun 2024, flutti stjórnsýsla Norðurþings úr Stjórnsýsluhúsinu á Ketilsbraut 7-9 í bráðabirgða leiguhúsnæði. Leigugjald þar er 30 millj. á ári.
Loftgæðum í húsnæðinu á Ketilsbraut var ábótavant vegna langvarandi vanrækslu á fyrirsjáanlegu viðhaldi hússins.
Það er stefna M - Lista Samfélagsins að halda betur við húsnæði sveitarfélagsins, þannig að svona aðstæður skapist ekki.
Á fundi Byggðaráðs 21.07.2026, lagði Rúnar Traustason oddviti listans fram bókun um þetta efni.
Í mars 2026 tók meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks enn eina ákvörðunina að fresta framkvæmdum við endurbætur. Önnur framboð s.s. M Listi Samfélagsins, Samfylkingin og VG mótmæltu þessari ákvörðun. Hún kostar eins árs seinkun, 30 millj. auka í leigu.
Við í M - Lista Samfélagsins styðjum framkomna tillögu.
Ágúst Sigurður Óskarsson M - Lista Samfélagsins
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu og vísar henni til frekari úrvinnslu í skipulags- og framkvæmdaráði.